Mánudagur 11.03.2024 - 08:28 - Rita ummæli

Lengi lifir í gömlum glæðum

Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, undirritaði ásamt 345 öðrum starfsmönnum Háskóla Íslands yfirlýsingu 13. nóvember 2023, þar sem lýst var andstöðu við „nýlendustefnu, aðskilnaðarstefnu og þjóðarmorð“ Ísraels í tilefni þess, að Ísraelsher fór eftir árás Hamas liða á Ísrael 7. október inn á Gasa svæðið til að stöðva hryðjuverk samtakanna. Ekki var í yfirlýsingunni minnst einu orði á ódæði Hamas liða 7. október, er þeir myrtu 1.200 Gyðinga og tóku fjölda gísla, en nota síðan íbúa á Gasa sem lifandi skildi, svo að fall óbreyttra borgara verður þar miklu meira en ella. Með yfirlýsingunni skerti Pia stórlega trúverðugleika Alþjóðamálastofnunar. Prófessor Guðmundur Hálfdanarson, stjórnarformaður stofnunarinnar, virðist þó ekki hafa brugðist við.

Alþjóðamálastofnun hélt fund 9. desember, þar sem Pia var ekki mætt, eflaust vegna þess að hún hefur vitað, að þar ætti að ráðast á einn frummælandann, Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra. Guðmundur Hálfdanarson var fundarstjóri, horfði opinmynntur upp á árásina og brást ekki við. En furðuleg tilviljun er, að afi Guðmundar, Jafet Ottósson, og afi Piu, Þóroddur Guðmundsson, voru báðir í hópi þeirra 27 Íslendinga, sem sóttu hinar leynilegu þjálfunarbúðir Alþjóðasambands kommúnista, Komintern, í Moskvu, þar sem kenndur var vopnaburður, leynileg fjarskipti, fölsun vegabréfa og annarra skjala og skipulagning verkfalla og götubardaga. Jafet var þar 1930–1931 undir dulnefninu Dan Mengel, en Þóroddur 1930–1932 undir dulnefninu Otto Stein. Jafet var síðan einn af þeim, sem veittust að Bjarna Benediktssyni, afabróður og alnafna utanríkisráðherra, fyrir framan Sjálfstæðishúsið við Austurvöll haustið 1946 í átökum um varnarmál. Þóroddur sat hins vegar í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins, og á fundi þar í nóvember 1947 sagði hann: „Hvað varðar mig um þjóðarhag?“ Sveinn Benediktsson, afi Bjarna utanríkisráðherra, sat líka í stjórninni. Hann upplýsti opinberlega um ummæli Þórodds, sem urðu þegar fleyg.

(Fróðleiksmoli í Morgunblaðinu 9. mars 2019.)

Flokkar: Óflokkað

«
»

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og sjö? Svar:

Höfundur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og hefur verið gistifræðimaður við fjölmarga erlenda háskóla, þar á meðal Stanford-háskóla og UCLA. Hann fæddist 1953, lauk doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla 1985 og er höfundur fjölmargra bóka um stjórnmál, sögu og heimspeki á íslensku, ensku og sænsku.


Nýjustu bækur hans eru Twenty Four Conservative-Liberal Thinkers, sem hugveitan New Direction í Brüssel gaf út í tveimur bindum í árslok 2020, Bankahrunið 2008 og Communism in Iceland, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gaf út árið 2021, og Landsdómsmálið, sem Almenna bókafélagið gaf út í desember 2022. Hann hefur gefið út átta bókarlangar skýrslur á ensku. Sjö eru fyrir hugveituna New Direction í Brüssel: The Nordic Models og In Defence of Small States (2016); Lessons for Europe from the 2008 Icelandic Bank Collapse, Green Capitalism: How to Protect the Environment by Defining Property Rights og Voices of the Victims: Towards a Historiography of Anti-Communist Literature (2017); Why Conservatives Should Support the Free Market og Spending Other People’s Money: A Critique of Rawls, Piketty and Other Redistributionists (2018). Ein skýrslan er fyrir fjármálaráðuneytið, Foreign Factors in the 2008 Bank Collapse (2018). Hann er ritstjóri Safns til sögu kommúnismans, ritraðar Almenna bókafélagsins um alræðisstefnu, en nýjasta bókin í þeirri ritröð er Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda 1950–1958. Árin 2017 og 2018 birtust eftir hann þrjár ritgerðir á ensku um frjálshyggju á Íslandi, Liberalism in Iceland in the Nineteenth and Twentieth Centuries, Anti-Liberal Narratives about Iceland 1991–2017 og Icelandic Liberalism and Its Critics: A Rejoinder to Stefan Olafsson.  

RSS straumur: RSS straumur

Nýlegar athugasemdir