Framhald gestafærslu sem birtist á þessum vettvangi þann 22. desember síðastliðinn og er skrifaður af frænku minni Elínu Ósk Arnarsdóttur sem hefur verið að vinna að frábæru verkefni í tengslum við forvarnir við átröskun og eflingu líkamsvirðingar hjá börnum. Færsluna má einnig finna á þessu bloggi. Nú er draumur minn að rætast. Verkefnið sem ég […]
Ferðaþjónusta fatlaðs fólks og eðlilegt líf Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Þjónustan er lykill margra að virkri þátttöku í samfélaginu. Mér þótti það alltaf stórmerkilegt þegar ég var mest að velta þessum málum fyrir mér í pólitíkinni á sama tíma og ég starfaði einnig að málefnum fatlaðs fólks hvað fólk […]
Eftirfarandi pistill er skrifaður af Elínu Ósk Arnarsdóttur frænku minni. Hún er að vinna að ákaflega spennandi verkefni sem mig langar að kynna á þessum vettvangi með henni. Hvet ykkur eindregið til að lesa pistilinn og helst að leggja þessu frábæra verkefni lið :). Hér kemur pistillinn. Ég fékk mjög áhugavert verkefni í uppeldisfræði á […]
Í dag hélt fjöldi fólks á Austurvöll að mótmæla. Samkvæmt fréttaflutningi af viðburðinum virðist fólk hafa mætt í mjög fjölbreytilegum tilgangi. Sumir mótmæltu slökum kjörum, aðrir mótmæltu framkomu tiltekinna kjörinna fulltrúa, margir stöðunni í heilbrigðis- eða menntamálum og svona mætti telja áfram. Ég mætti ekki þrátt fyrir að hafa oft mætt á mótmæli. Ég hef […]
Ég er nýkomin heim úr ferð til Amsterdam. Þar sem ég hef lengi haft sterkar skoðanir á klámiðnaðinum, vændi og annarri misbeitingu á líkömum fólks tók ég meðvitaða ákvörðun um það að fara í Rauða hverfið til þess að finna á eigin skinni hvernig ég myndi upplifa þennan furðulega afkima mannlegrar tilveru. Ég get ekki […]
Í dag er Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn og vil ég óska okkur öllum til hamingju með hann. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á geðheilbrigðismálum, fræða almenning um geðrækt og geðsjúkdóma og sporna gegn fordómum. Ég tel að við getum gert margt betur til þess að byggja upp gott geðheilbrigðiskerfi. Við þurfum að leggja mikla áherslu á […]
(DV, 19. sept. 2014). Kvíði barna og unglinga sem ekki er meðhöndlaður getur þróast yfir í alvarlegt þunglyndi. Ómeðhöndlaður tilfinningavandi barna og unglinga getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar svo sem áhættuhegðun, brotthvarf úr skóla og þegar fram líða stundir erfiðleika við að taka þátt í samfélaginu sem einstaklingur á vinnumarkaði. Íslendingar nota […]
Eftir stefnuræðu og umræður kvöldsins velti ég vöngum yfir ýmsu. Ég hefði gjarnan viljað fá skýrari mynd af því hver stefnan er næsta árið með nokkuð vel útfærðum skýringum. Það hefði ég viljað heyra í stað þess að heyra hluti sem ég hef oft heyrt áður eins og það hversu lánsöm við séum að búa […]
Á hverjum degi stöndum við frammi fyrir ótal valkostum. Við erum sífellt að taka ákvarðanir, allt frá mjög veigalitlum ákvörðunum til mjög afdrifaríkra ákvarðana. Við veljum hvort við ætlum að fá okkur banana eða súkkulaði og jafnvel hvort við ætlum að segja já eða nei við bónorði. Stundum gleymum við hvað við höfum í raun […]
Þessi ummæli vöktu mig til umhugsunar um hinn þögla meirihluta. Hinn þögli meirihluti hefur að mínu mati mun meiri völd en við áttum okkur á. Hver er hinn þögli meirihluti? Það er fólkið sem situr á sér, bítur í varirnar, fólkið sem horfir á, gott fólk sem gerir ekki neitt þrátt fyrir að vita kannski innst […]