Hvað er það dýrmætasta sem þú átt? Ef þú ert foreldri þá spái ég því að svar þitt verði: Börnin mín. Ég fékk spurnir af því að mikið frumkvöðlastarf í slysavörnum barna sé í hættu og leggist jafnvel af um þessi mánaðarmót og tel að bregðast þurfi við því. Í grófum dráttum er staðan þannig: […]
sagði litla tveggja ára snúllan sem var í mat hjá mér í kvöld. Á sama tíma hlustaði ég á stefnuræðu forsætisráðherra og umræður um hana. Einhvern veginn finnst mér ég hafa heyrt sumar þessar ræður mörgum sinnum áður. Ég fékk hálfgerða „deja-vu“ tilfinningu og missti stundum einbeitinguna annað hvort vegna efnisinnihalds ræðanna eða vegna flutnings […]
Þessi mögnuðu orð var góð vinkona mín vön að segja. Í orðum hennar er að finna djúpa heimspekilega sýn á mannlega tilvist og samfélag manna að mínu mati. Það geta nefnilega ekki allir verið eins, sem betur fer. Sem betur fer erum við hvert og eitt einstök sköpun og það er enginn til nákvæmlega eins […]
Ég fór á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um helgina. Skemmti mér alveg konunglega á þessari einstöku hátíð Eyjamanna. Upplifði tónlistina, blysin, flugeldana, brekkusönginn, fólkið, umhverfið og margt áhugavert sem þessi hátíð hefur upp á að bjóða. Mín upplifun er sennilega lík því sem mjög margir upplifa. Góðar minningar um að njóta þess í botn að vera […]
Það styttist í kosningar og greinilegt að ýmsir eru farnir að hugleiða kosningabaráttuna. Ég fékk mjög góða áskorun sem ég ætla að verða við hér og það er að taka upp umræðu á þessum vettvangi um mikilvægi þess að það sem stjórnmálaflokkarnir láta frá sér varðandi stefnumál og annað verði aðgengilegt öllum kjósendum. Þessum spurningum […]
Síðasta bloggfærslan mín virðist einhverra hluta vegna hafa hreyft við viðkvæmum sjálfstæðishjörtum. Svo mikið hreyfði hún við varaþingmanninum Óla Birni Kárasyni að hann virðist hafa séð sig knúinn til þess að skrifa þessa frétt um málið. Þar sakar hann mig um að skálda staðreyndir og segir m.a.: Ef staðreyndir falla ekki að fyrirfram ákveðnum skoðunum detta margir […]
Traust á Alþingi er í sögulegu lágmarki og einungis 10% sögðust treysta Alþingi samkvæmt könnun Capacent í mars 2012. Fyrir hrun stóð þessi tala í um 40% en núna stefnir traustið hraðbyr undir 10% markið ef það hefur ekki nú þegar gerst. Í þingkosningunum 2009 tók um þriðjungur nýrra þingmanna sæti á Alþingi þannig að […]
Íslenska þjóðin missti af gullnu tækifæri á laugardaginn. Tækifæri til sátta, samstöðu, framsýni, og til þess að slá fastan takt til nýrra tíma. Tækifærið að eignast unga glæsilega fjölskyldukonu sem nýjan forseta rann þjóðinni úr greipum á laugardagskvöldið eins og sandur sem rennur um lófana. Uppskeran er áframhaldandi seta eins þaulsetnasta leiðtoga Evrópu og sennilega […]
Á laugardaginn 30. júní n.k. munum við Íslendingar kjósa okkur nýjan þjóðarleiðtoga, nýjan forseta lýðveldisins Íslands. Stóra spurningin liggur í loftinu og henni verður ekki svarað fyrr en talið hefur verið upp úr kössunum. Hvernig mun andlit þjóðarinnar líta út að morgni 1. júlí 2012? Hvaða einstaklingur mun leiða íslensku þjóðina næstu árin (8-12 árin), […]
Ég mætti á frambjóðendafund forsetaframbjóðenda í Borgarbókasafni við upphaf kosningabaráttunnar. Ein þeirra spurninga sem ég spurði frambjóðendurna að var hversu lengi þeir teldu að forseti ætti að sitja. Allir frambjóðendur sem þátt tóku í fundinum (Þóra, Hannes og Ari Trausti) svöruðu því til að forseti ætti að sitja 2-3 kjörtímabil. Ólafur Ragnar sem einhverra hluta […]