Miðvikudagur 05.07.2017 - 12:17 - 2 ummæli

Barnabætur eða fátækrastyrkur

Barnabætur hér á landi eru nú nánast eins og styrkur til fátækra og mjög ólíkar barnabótum hinna Norðurlandanna. Meginmarkmið ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri fjármálaáætlun, er að barnabætur verði eingöngu stuðningur við tekjulægstu fjölskyldurnar. Farið er eftir tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um endurskoðun barnabótakerfisins. Sjóðurinn ráðleggur ríkisstjórninni að einfalda kerfið og beina greiðslum til lágtekjuheimila með hærra skerðingarhlutfalli miðað við laun. Einnig leggur sjóðurinn til að einstæðir foreldrar fái ekki hærri greiðslur en sambýlisfólk. Þannig verði einungis greidd ein föst fjárhæð fyrir börn undir 18 ára aldri og aldrei með fleiri börnum en þremur. Þetta þekkist hvergi á Norðurlöndunum.

Kynjasjónarmið

Furðu sætir að ríkisstjórnin leiti til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um útfærslu barnabóta þegar beinast liggur við að líta til hinna norrænu ríkjanna. Þar eru bæturnar almennt ekki tekjutengdar og eru fyrst og fremst hugsaðar til að jafna stöðu barnafólks við hina sem ekki eru með börn á framfæri. Ótekjutengdar barnabætur draga einnig síður úr sjálfstæði og atvinnuþátttöku kvenna en tekjutengdar bætur. Ungum fjölskyldum á Norðurlöndunum munar um stuðninginn sem barnabætur veita og jöfnunarhlutverk þeirra er mikilvægt.

Jafnaðarstefnan

Vinstristjórnin hækkaði barnabætur um leið og hún komst í færi til þess. Haustið 2012 unnum við í fjármálaráðuneytinu ný viðmið fyrir úthlutun barnabóta. Greiðslurnar hækkuðu og náðu lengra upp eftir tekjuskalanum en áður. Hugmyndin var að hækka barnabæturnar í skrefum í átt að ótekjutengdu kerfi hinna Norðurlandanna. Því samþykkti Alþingi 30% hækkun barnabóta í fjárlögum 2013. Núverandi ríkisstjórn fer í þveröfuga átt og hefur á kjörtímabilinu hert á tekjutengingu. Jafnaðarmenn tækju ekki einu sinni til athugunar tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um barnabætur í líki fátækrastyrks. Barnabótakerfi líkt hinna norrænu ríkjanna er okkar fyrirmynd enda góð reynsla af þeim fyrir börnin og foreldra þeirra. Verði jafnaðarmenn í næstu ríkisstjórn munum við standa við bakið á barnafjölskyldum.

Þessa grein skrifaði ég árið 2016 um aðra ríkisstjórn en engu þarf að breyta þegar að rætt er um stefnu núverandi ríkisstjórnar, enda báðar hægristjórnir þar sem Sjálfstæðisflokkurinn ræður för.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Hver er afstaða jafnaðarmanna til þeirrar mismununar sem foreldrar eru beittir vegna búsetu í þeim tilvikum sem hún er ekki á sama stað?

  • Það er hálfsannleikur hjá Oddnýju að segja að barnabætur séu til að jafna stöðu barnafólks. Umgengnisforeldrar með jafna umgengni og forsjá, fá ekki krónu í barnabætur, jafnvel þótt þeir eigi ekki til hnífs og skeiðar að frádregnum meðlagsgreiðslum. Vinstri stjórnin lyfti ekki litla fingri fyrir umgengnisforeldra og börn þeirra, ekki frekar en búast mátti við frá vinstri stjórnmálaflokkum.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og sex? Svar:

Höfundur

Oddný G. Harðardóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar jafnaðarmannaflokks Íslands.
RSS straumur: RSS straumur