Í dag var verið að ræða við Steinar B. Aðalbjörnsson næringafræðing á Bylgjunni og kom hann inn á atriði sem ég hef lengi haft áhuga á og snýr að því að auka aðgengi barna að grænmeti og ávöxtum. Ákvað því að birta hér grein sem ég skrifaði 2008 og þrátt fyrir að vera 5 ára […]
Ég spái því að eftir verslunarmannahelgi fari fólk að stíga fram sem hugsar sér til hreyfings fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Í því ljósi er afar mikilvægt að hvetja efnilegar konur til þess að gefa kost á sér því á sveitarstjórnarstiginu hallar of mikið á hlut kvenna og er hlutfallið yfirleitt u.þ.b. ein kona á móti […]
Enn á ný hefur Alþingi Íslendinga mistekist að ganga á undan með góðu fordæmi varðandi jafna kynjaskiptingu nefnda sinna. Þær nefndir sem snúa að atvinnu-, efnahags-, viðskipta- og utanríkismálum eru aðallega skipaðar körlum og sú nefnd sem snýr að velferðarmálum er aðallega skipuð konum. Ekki ólíkt því sem bent var á 2011. Sem sagt karlmenn […]
Ég myndi vilja gera fleiri mistök næst Ég myndi slaka á og vera mýkri Ég myndi vera kjánalegri en ég hef verið í þessari ferð Ég myndi taka færri hluti alvarlega Ég myndi taka áhættu oftar Ég myndi klífa fleiri fjöll og synda yfir fleiri fljót Ég myndi borða meiri ís og minna af grænum […]
Fyrirspurn Sálfræðingafélags Íslands um stefnumótun í geðheilbrigðismálum og aðgengi almennings að gagnreyndri sálfræðimeðferð -Svör Framsóknarflokksins- Formáli og stefnumótun Alvarlegar afleiðingar efnahagshruns og sá óstöðugleiki sem því fylgir birtast ekki síst í aukinni hættu á streitu og tilfinningavanda hjá öllum aldurshópum sem stefnir geðheilbrigði landsmanna í aukna hættu með tilheyrandi áhrifum á fjölskyldulíf, vinnumarkað og samfélagið […]
Sumardagurinn fyrsti. Það snjóaði í dag. Á föstudaginn göngum við að kjörborðinu og nýtum dýrmætan atkvæðisrétt okkar til þess að ákveða hvern við viljum sjá stjórna landinu næstu fjögur árin. Ég veit ekki hvað ég hef hugsað mikið um það eða skrifað marga pistla um það óréttlæti sem dunið hefur yfir almenning síðan í október […]
Í dag var ég í Smáralindinni ásamt frambjóðendum Framsóknar í SV kjördæmi að ræða við fólk. Pólitík er alveg samofin lífi okkar allra og eitt það mest heillandi við að starfa í stjórnmálum er tækifærið að hitta fólk og kynnast samfélaginu frá ýmsum sjónarhornum. Tækifærið að heyra sögur fólks sem geta kennt manni svo margt. […]
Ég hef orðið vör við það viðhorf hjá sumum að eitt aðalmarkmið næstu kosninga sé að jarða fjórflokkinn. Í mínum huga eru slíkar yfirlýsingar ódýr einföldun á flóknu máli. Ég tel slíkan hugsunarhátt bera vott um svarthvíta hugsun sem verður ekki að gagni. Ég hef starfað frá árinu 2006 í stjórnmálum, bæði í einum af […]
Við Íslendingar erum reynslunni ríkari eftir hrun. Margt fór úrskeiðis, marga bar af leið. Þegar maður lítur til baka, óveðrinu hefur slotað að mestu og öldurnar lægt þá sér maður sífellt betur þann skaða sem varð og hvernig við höfum brölt með góðum og slæmum árangri á þessum erfiðu tímum. Svolítið eins og forfeður okkar […]
Sagði góð vinkona mín, Þórey Anna Matthíasdóttir, mér í símtali undir hádegið. Davíð hefur sigrað Golíat. Fyrsta skrefið hefur verið stigið að betri framtíð íslenskrar þjóðar úr rústum hrunsins. Þjóðar sem er orðin hálfhokin af ömurlegum afleiðingum fjárglæfra þar sem lífsgæðin hafa farið niður úr öllu og hvert áfallið rekið annað. Þjóðar sem hefur ekki […]