Þriðjudagur 30.08.2016 - 21:31 - 2 ummæli

Um eftirlaun

Stutt ræða á Alþingi 30. ágúst 2016

Herra forseti

Ísland er ríkt land og hér á að vera best í heimi að lifa, eldast og eiga gott ævikvöld. Það er samt ekki hægt að segja að þannig sé staða allra sem eldri eru hér á landi. Of margir eldri borgarar lifa eingöngu á lágmarkseftirlaunum sem í dag eru 212 þús. kr. á mánuði. Er einhver hér í þessum sal sem getur lifað á rúmum 200 þús. kr. á mánuði? Nei, ég held ekki. 

Eldri borgarar eru augljóslega af báðum kynjum og fátækt er jafn slæm hvort sem um er að ræða karl eða konu. En samt sem áður er erfitt að horfa fram hjá því að kynbundinn launamunur hefur ekki aðeins áhrif á laun kvenna þegar þær eru ungar, launamunurinn hefur áhrif á öll réttindi sem þær ávinna sér á vinnumarkaði. Konur frá lægri orlofsgreiðslur en karlar og lægri eftirlaun. Þannig eru konur líklegri til að búa við fátækt á sínum efri árum. Margar konur vinna í láglaunastörfum og aðrar hafa unnið hlutastörf vegna ábyrgðar á börnum og heimili, öldruðum foreldrum eða öðrum ættingjum. Þar að auki sjáum við iðulega skýr merki þess að konur reki höfuðið í glerþakið og fái ekki sömu tækifæri og framgang á vinnustöðum og karlmenn. Það hefur líka áhrif á launin og á eftirlaunin.

Ef við getum skipt þjóðarkökunni með réttlátari hætti getum við auðveldlega bætt kjör eldri borgara. Við höfum vel efni á því að hækka lágmarksgreiðslur afturvirkt og framvegis í takt við aðrar launahækkanir í landinu. Það er reisn yfir þjóð sem veitir öldruðum og öryrkjum líka mannsæmandi laun. Samfylkingin ætlar að hækka eftirlaunin, setja á sveigjanleg starfslok og einfalda fólki að skilja og verja rétt sinn svo það geti lifað með reisn ævina út.

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Hér eru hreint ekki allir sem fá aðeins 213.000.

    Þingmenn eru þar gott dæmi.
    Flestir þeirra er setið hafa frá því fyrir hrun eru enn í B-kerfi hins opinbera og því á 76% af síðasta launaseðli við 65 ára aldur eða 89% við 67 ára aldur.

    Ef að þú tekur t.d. þingfararkaup fær aðili á almennum launamarkaði…
    tæplega …..300.000
    A-hluti ríkisins af sömu launum…. 518.000
    B-hluti ríkisins af sömu launum…. 547.000 mv 65 ára
    B-hluti ríkisins af sömu launum…. 640.000 mv 67 ára

    Opinberu sjóðirnir eru að fara á hausinn og almenningur á að greiða í gatið 500 milljarða, N.B. fyrir launum langan LANGAN veg umfram það sem það mun nokkurntíma fá.

  • Ásmundur

    Kannanir hafa sýnt að þeir hópar þjóðfélagsins, sem eiga í mestum vandræðum með að láta enda ná saman, eru einstæðar mæður og einhleypir karlar.

    Skýringin er væntanlega ekki síst sú, að þeir sem búa án maka hafa að miklu leyti sama kostnað og tveir einstaklingar í sambúð en aðeins eina fyrirvinnu í stað tveggja.

    Í öðrum löndum, þar sem ég hef þekkt til, og einnig hér á landi áður en staðgreiðsla var tekin upp, var tekið tilit til þessa aðstöðumunar í skattlagningu. Þannig hefur persónuafsláttur einhleypinga gjarnan verið 2/3 af persónuafslætta hjóna eða sambúðarfólks en ekki helmingur eins og hér.

    Ef persónuafsláttur hjóna helst óbreyttur myndi þetta þýða að persónuafsláttur einhleypinga myndi hækka um þriðjung. Það myndi bæta verulega hag hinna verst settu ekki síst öryrkja og aldraðra en meirihluti þeirra eru einhleypir síðustu æviárin.

    Aðstöðumunur milla einhleypra og sambýlinga er viðurkenndur í greiðslu bóta en ekki í skattlagningu launa. Einstæðar mæður og einhleypt fólk almennt býr því við skertan hlut sem sannur jafnaðarmannaflokkur hlýtur að rétta.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og einum? Svar:

Höfundur

Oddný G. Harðardóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar jafnaðarmannaflokks Íslands.
RSS straumur: RSS straumur