Þriðjudagur 25.10.2016 - 11:54 - 5 ummæli

Óábyrg efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins

Formaður Sjálfstæðisflokksins skilur ekki enn hvernig hann skildi eftir lág- og millitekjufólk – 80 prósent landsmanna! – en lækkaði skatta á efnaðasta fólk landsins. Það er svo merkileg þessi mýta um að hægrimenn stjórni betur en aðrir eða hafi meira vit á peningum, því hún stenst enga skoðun. Indriði Þorláksson, fyrrum ríkisskattstjóri, afgreiddi fjármálaráðherrann snyrtilega og benti honum á að aukin skattbyrði komi vissulega til vegna hærri tekna hjá meirihluta launafólks, en það ekki raunin hjá þessum ríkustu 20 prósentum. Þeirra skattur hefur lækkað á sama tíma að tekjur þeirra hafa hækkað meira en annarra.

Jafnvel þótt allt annað í kosningabaráttunni hafi farið framhjá kjósendum, er hér komin ein mikilvæg ástæða til að skipta um stjórn. Því þessi stjórn vinnur eingöngu samkvæmt löngu úreltum kenningum um brauðmola til almúgans og mikilvægi þess að sumir lifi í lúxus en aðrir dragi fram lífið. Þeir hafa rangt fyrir sér.

Svona á að gera þetta

Ef bæta á stöðu almennings, en ekki bara þeirra ríkustu, verður að beina sköttunum í rétta átt. Það jafnvægi bjó Samfylkingin til fyrir nokkrum árum, með þrepaskiptum tekjuskatti. Þeir hafa lægstu tekjurnar greiða minnst í skatt, en þeir sem eru í mestu færum borga mest. Það er réttlátt, og á því byggja þau samfélög sem helst er horft til í heiminum og jafnaðarmenn hafa byggt upp.

Útboð á kvóta er ekki sérstakt áhugamál Samfylkingarinnar, heldur réttlætismál fyrir okkur öll. Að afnema undanþágur ferðamanna frá greiðslu virðisaukaskatts er leið til að fjármagna grunnþjónustu. Þannig öflum við peninga til að standa undir öflugri gjaldfrjálsri þjónustu við sjúklinga og nemendur og verðum í færi til að styðja við barnafjölskyldur, aldraða, öryrkja og þeirra sem eru fastir á fokdýrum leigumarkaði.

Góður jarðvegur fyrir einkaframtak

Vissulega verður að búa fyrirtækjum landsins góðan jarðveg með hagstæðum sköttum og gjöldum, en það er best gert með lækkun tryggingagjalds. Það lækkaði ekki nema um hálft prósent seint á þessu kjörtímabili, þrátt fyrir loforð um annað. Skattalækkunum hægrimanna  er venjulega beint í kolrangar áttir og annað dæmi um það er ferðaiðnaðurinn, sem er orðin okkar stærsta og öflugasta atvinnugrein. Eitt sinn átti það við að styrkja þá grein beint, en nú hjálpum við henni ekki með skattalækkunum. Besti stuðningurinn við móttöku ferðamanna er með uppbyggingu innviða, betri vegum, betri aðstöðu, verndun náttúrunnar og eflingu heilsugæslu og löggæslu.

Líka til heimbrúks

Sagan sýnir að vinstrimenn eru sérstaklega færir í efnahagsstjórn því við hugsum um almannahag. Utanríkisráðherra sækir nú heim háskóla og virtar stofnanir erlendis og útskýrir hversu vel við stjórnuðum í efnahagshruninu. Hún mætti gjarnan brúka þann fyrirlestur hér heima líka, kjósendum til upplýsingar.

Skattabreytingar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hafa snúist um að raska því jafnvægi sem við sköpuðum milli skattgreiðenda og nú greiða ríkustu 20% þjóðarinnar hlutfallslega lægri skatta en aðrir. Það er óréttlátt og því eigum við breyta. Það er helsta ógn við stöðugleika á Íslandi og ástæða þess að ASÍ styrkir nú verkfallssjóði sína.

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Atli Sigurðsson

    Athyglisvert allt saman. En spurningin er, hvaða flokkar eiga að skipa næstu stjórn? Í töluvert langan tíma hefur það verið ljóst að enginn vilji er hjá kjósendum að Samfylkingin taki þátt í næstu ríkisstjórn. Því er það hálfbroslegt að fylgjast með forystufólki hennar tala á þann hátt sem þau gera.

  • Garðar Garðarsson

    Miklar líkur eru á fjögura flokka stjórn sem samanstendur af Pírötum, Samfylkingu, VG og Bjartri framtíð. Oddný yrði þar góður fjármálaráðherra.

  • Sæl Oddný.

    Þessi „snyrtilega afgreiðsla“ læriföður ykkar í skattamálum er nú ekki réttari en svo að hún gefur afar takmarkaða mynd af stöðunni.
    Nú er það þannig að laun hafa hækkað umfram vísitölu neysluverðs en persónuafsláttur er einmitt verðtryggður (samkvæmt lögum). M.ö.o. launavísitala hefur hækkað mun meira en vísitala neysluverðs. Þetta veldur því að allir hópar greiða hærri hlutfall í skatt (sem nemur þessum mismun) þ.e. meðalskattur hækkar.
    Á sama tíma hefur staða fólks og heimila að vænkast, og það sem jákvætt er að ráðstöfunartekjur allra hópa hafa vaxið á kjörtímabilinu. Það er því aldeilis búið að bæta stöðu allra tekjuhópa sem er fagnaðarefni.

  • „Sagan sýnir að vinstrimenn eru sérstaklega færir í efnahagsstjórn því við hugsum um almannahag. “

    Hvaða dæmi ertu að vísa í þarna?

  • Ásmundur

    Mannval sjálfstæðismanna í efstu sæti í stærstu kjördæmum landsins endurspeglar mikla spillingu í flokknum.

    Ólöf Nordal er, eða allavega var, prókúrhafi fyrir reikning á Tortóla á nafni eiginmannsins, en hélt því leyndu.

    Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skoraði fyrir nokkrum árum á Guðlaug Þór að segja af sér þingmennsku vegna spillingar.

    Bjarni Ben á eða átti reikning á Tortóla sem hann hélt leyndum. Að ógleymdri meintri frændhygli vegna Borgunar , Matorku ofl.

    Það kemur því ekki á óvart að gífurlegir fjármunir hafa verið færðir frá hinum verr settu til hinna betur settu á kjörtímabilinu.

    Með oddvita í stærstu kjördæmum landsins, sem eru alvarlega viðrinir spillingu, er fráleitt að treysta Sjálfstæðisflokknum fyrir stjórn landsins.

    Þeir hafa sýnt það að þeir gefa loforð fyrir kosningar til að aflla sér atkvæða en tilkynna svo að kosningum loknum að þeir ætla ekki að efna loforðið.

    Við erum ekki hálfvitar sem látum þá komast upp með slíkt aftur.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og fimm? Svar:

Höfundur

Oddný G. Harðardóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar jafnaðarmannaflokks Íslands.
RSS straumur: RSS straumur