Íslendingar tapa hinsvegar nú lífshættulega stórt gegn sínum eigin stjórnvöldum!!
Hvað sem segja má um byggingaáform Nýs Landsítala ohf. nú við Hringbraut og sem reyndar að flestra mati eru mjög misráðin, er víst að engin gagnrýni á jafn mikilvægt þjóðþrifamál hefur verið þögguð jafn rækilega niður af stjórnvöldum á seinni árum. Einkum sl. 5-6 ár og eftir að ljóst var að upphaflegar forsendur voru flestar brostnar (og sem voru þó sér fyrirfram gefnar af hagsmunaaðilum upp úr aldarmótunum, þar á meðal Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands. Allan þennan tíma hefur ekki mátt ræða nýja staðarvalsathugun þrátt fyrir ótal rök fagaðila og stöðugt nýja forsendubresti. Í dag sjá flestir þessi rök og jafnvel að framkvæmdin stefni í gífurlegan sokkinn kostnað þegar upp verður staðið. Fyrir utan óhagræð og óþægindi á viðkvæmri spítalastarfseminni á Hringbraut á framkvæmdatíma. Aðgangshindranir fyrir sjúklinga, sjúkraflutninga og starfsfólk eru þó alvarlegastar næsta áratuginn í það minnsta í þessu dæmi öllu. Eins stórhættulegar sjálfskapaðar aðstæður fyrir t.d. sjúkraþyrluflutninga og sem sífellt færist í vöxt og mikilvægi og lesa má nær daglega í fréttum.
Hvernig má vera að jafn mikilvægt mál og að öll varnaðarorð sem best þekkja til, séu hundsuð svona rækilega og lengi!!. Jafnvel sett í fréttabann eins og hjá RÚV ohf. Rök sem flestir stjórnmálamenn segja síðan í dag að séu skynsamleg en of seint að ræða!! Allir vita að nýtt aðalskipulag Reykjavíkur (AR 2011-2030) þurrkaði út samgöngubætur sem skilyrtar voru í fyrra staðarmati og úttektar fjársýslu ríkisins á Hringbraut, 2008. Skilyrði sem varð að vera til staðar ÁÐUR en sjálfar framkvæmdir hæfust!! Nú eins óvissa, og jafnvel stefnt að brottför Reykjavíkurflugvallar um svipað leiti og fyrsta byggingaáfanga á Hringbraut á að verða náð 2024! Ein önnur meginforsenda upphaflegs staðarvals á Hringbrautinni.
Ekkert nýtt áhættumat síðan gert á Þyrlusjúkrafluginu eftir 2012 vegna gjörbreyttra hættulegra aðstæðna að spítalanum, m.a. vegna staðsetningar þyrlupalls og byggðarinnar allt í kring!
Þjóðinni á eftir að blæða fyrir þessa kúgun á skoðanafrelsi þjóðarinnar og klúður á einni dýrustu ríkisframkvæmd sögunnar. Gríðarlegur aukinn kostnaður hefur enda verið reiknaður við framkvæmdir í heildardæminu á Hringbraut, miðað við ef byggt væri á besta stað! Stjórnvöld meðvitað þannig hundsað allar ábendingar og hlutast endurtekið árum saman um þöggun í ríkisfjölmiðlinum! Allan þennan tíma og sem allir sjá í dag nema e.t.v. þeir heilaþvegnu á Alþingi að byggingamálin á þjóðarsjúkrahúsinu hefðu geta verið komin í miklu betri farveg fyrir nokkrum árum ef hefði verið hlustað. Tl sæmis á SBSBS (Samtök um betri spítala á betri stað) þegar þau hóf baráttu sína í bestu trú fyrir 5 árum, án allra sérhagsmuna og sem nú um 10.000 fullorðinna Íslendinga styðja heilshugar í baráttu fyrir sigri. Og vissulega mæti gera miklu betur ef bara óvildina vantaði hjá stjórnvöldum.
Í dag vantar reyndar miklu frekar mannskap í heilbrigðiskerfið, einkum hjúkrunarfræðinga, en strax meiri steypu og stál á Hringbraut. Hálfu sjúkradeildarnar eru lokaðar vegna manneklu, eins og sjá má t.d. á öldrunardeildum, geðdeildum m.a. fýknigeðdeild 33C og síðan á sjálfri Hjartagáttinni í sumar. Stöðugt lífshættulegt yfirflæði á bráðamóttöku LSH í Fossvogi reyndar allt árið vegna skorts á legurýmum aldraða Lífshættulegu tafirnar þannig endalaus, en sem stjórnvöld hamra bara á ef farið er í nýja og nútímalega staðarvalsathugun á framtíðarsjúkrahúsinu okkar, á besta stað!! Líshættulegustu tafirnar í dag eru þannig alls ekki byggingalegs eðlis eins og ráðherra heilbrigðismála og fylgisveinar hennar í ríkisstjórn vilja meina. Nei, þær eru vegna þekkingar- og skeytingaleysi, og vonandi ekki mannlegrar óvildar. Mannlegrar gæsku, hugvits og reynslu sem býr í grunnlögum heilbrigðiskerfisins, bæði þess ríkisreka og einkarekna. Ekki hjá ríkisstjórninni sem fer með fjármálavaldið, tengt gömlum skuldbyndingar við eldri flokksbræður og systkyni í öðrum flokkum. Ekkert meira eða minna en að hlustað sé á strfsfólkið og þjóðarvitundina og allra síst að ríkisfjöðliar séu notaðir til að þagga niður umfjöllun á hagkvæmustu lausnunum, til skemmri og lengri tíma, til þess eins að þóknast systurhlutafélögum ríkisins og sérhagsmunaöflum.
Við hljótum að geta a.m.k. gert kröfu um að 100-200 milljarða króna byggingafjárfestingar af almannafé og fjárveitingum til heilbrigðiskerfisins næsta áratuginn, sé skynsamlega og vel varið. Forgangsraðað fyrst og fremst eftir þörfum og hagkvæmni hverju sinni. Annars standa kannski bara ófullkomnu húsin tóm þegar yfir lýkur á Hringbrautinni sönnu.