Fáfræði almennings þegar kemur að vitneskju um rétta lyfjanotkun er mikil hér á landi og krafan á bráðalausnir eru meiri en í nágrannalöndunum. Skortur á heilsugæsluþjónustu á daginn, en áhersla á skyndiþjónustu og lausnir í apótekunum á kvöldin ræður þar miklu um. Allskyns kúrar þrífast sem og pýramídasölukerfi þar sem maður er settur á mann […]