Fyrir einni öld (um 1920) var talsambandi komið á með að tengja búsetusvæði á Íslandi með koparsímalínum. Heimurinn opnaðist og stuttu síðar var farið að heyrast í útvarpssendingum RÚV um allt land með langbylgjusendingum.
Í dag eru símalínur aflagðar vegna tækninýjunga og rafræns netsambands, m.a. til að ná útsendingum ríkisfjölmiðilsins RÚV ohf. sem við borgum öll afnotgjöd til. Ljósleiðarar tryggja auðvitað sambandið en víða eru þeir ekki aðgengilegir. Örbylgjusendar voru síðasta útspilið áður en treyst var á G2-G3 senda sem gátu annast miklu meira gagnamagn til sendinga við bestu skilyrði. G3 sendarnir tryggðu auk þess hvað best símasamband með ákveðnum rásum sem gerðar voru eingöngu fyrir símsamband. Víða var samt sambandið ótryggt og blind svæði mörg á landsbyggðinni. Til að auka gagnamagn í sendingum til notenda sem ekki voru ljósleiðaratengdir komu G4 og G5 sendar. Gallinn var bara sá að gagnamagn til móttöku var aðeins möguleiki ef sendarnir væru því stærri og á fleiri stöðum. Nú er svo komið að mörg svæði eru oft algjörlega sambandslaus við þessa senda, háð fjölda móttakenda. Þannig er í dag mörg stór búsetusvæði algjörlega sambandslaus við umheiminn, til skemmri eða lengri tíma. Ástandið versnar á öllum álagstímum, t..d með fjölda þeirra sem treysta á netsambandið, m.a. til að ná útsendingum sjónvarpsstöðva eða bara að fá tengingu í snjallsímann sinn eða tölvuna. Á slíkum tímum er öryggisþjónustan því engin, jafnvel alveg símsambandslaust og breytir engu þótt notendur séu með nýjasta útbúnaðinn frá „símfyrirtækjum“.
Fjarskiptastofa hefur yfirumsjón með þessum þáttum og tók þátt í að leggja niður gömlu G2 og G3 kerfin á sama tíma og nýju G4 og G5 sendarnir voru langt í frá að anna eftirspurn eftir netsambandi. Síminn þar á meðal og að geta hringt úr símanum sínum eða móttekið utanaðkomandi símtöl. Mörg svæði eru auk þess algjörlega sambandslaus viðvarandi og skuggasvæðinin fleiri en í gamla G2 og G3 kerfinu sem þó vissulega gat brugðist líka mtt. álags og fjölda móttakenda á hverju svæði fyrir sig. Sennilega lætur RÚV ohf. sig þetta sambandsleysi engu varða og engar útsendingar náist, enda hefur það engin áhrif á afkomu þess opinbera hlutafélags. Þjónustuhlutverkið situr einhversstaðar oft úti í móa eða á heiðum landsins. Almannavarnahlutverk RÚV ohf. því í skötulíki. Ábyrgðin er bara annarra og símfyrirtækjanna að sjá um. Annara hlutafélaga, þess vegna í ríkiseigu!
Víða á þjóðvegum landsins næst þannig ekkert samband á stórum köflum og allt versnaði þetta þegar gömlu G2 og G3 sendarnir voru aflagðir í sumar eins og áður sagði frá. Neyðarnúmer 112 um leið gert óvirkt í eldri símtækjum og sem studdust eingöngu við þessa gömlu senda. Nýju 4G og 5G sendarnir ná víða allt of skammt og mýmargir blindir blettir á landinu öllu. Sendarnir anna engan vegin álagi á mörgum svæðu, sérstaklega þegar notendum fjölgar t.d. á samkomum og viðburðum úti á landi. Allt netsamband þá úti og þar sem ekki er komin ljósleiðaratenging. Fyrir almenning og bráðaliða þegar neyð skapast og hjálpar er þörf er þetta stórhættulegt og óásættanlegt ástand árið 2026. Við vorum að mörgu leiti betur sett með koparinn fyrir einni öld!
https://www.visir.is/g/20262876247d/gripu-til-sinna-rada-og-settu-star-link-i-skolarutuna
Bestu kveðjur Vilhjálmur Ari Arason

Vilhjálmur Ari Arason