Færslur fyrir flokkinn ‘heilbrigðismál’

Laugardagur 18.04 2026 - 22:27

Heim til Hóla

Í tilefni fundar með íbúum og velunnurum Hóla í Hjaltadal á 70 ára afmælisdegi mínum 27.4 nk., vil ég fá að bera fram eina afmælisósk. Að mark verði tekið á tilmælum hópsins um uppbyggingu og styrkingu áframhaldandi háskólastarfs á Hólum og nauðsynlegu viðhaldi eða endurbyggingu skólahússins. Hólaskóli á biskupssetrinu var rekinn frá því snemma á […]

Föstudagur 17.04 2026 - 11:04

Eru Íslendingar búnir að gleyma berklunum?

Berklar á Íslandi lögðust ofurþungt á þjóðina langt aftur í aldir og fram á miðja síðustu öld. Talið er að um 3000 Íslendingar, flestir á besta aldri hafi látist bara á þessari öld. Fimmtungur, eða um 1000 sem fengu hjálp á berklahælum t.d. á Vífilsstöðum fyrir tilkomu virkra sýklalyfja, dóu engu að síður úr sjúkdómnum. […]

Þriðjudagur 17.03 2026 - 19:05

Sjúkrahúsin á Íslandi í broti aldarspegilsins

Saga sjúkrahúsa á Íslandi tengist annars vegar heilbrigði þjóðarinnar og hins vegar  viðhorfum stjórnvalda til samfélagsþjónustu á hverjum tíma. Eiginleg sjúkrahús voru ekki starfrækt fyrr en í lok 19.aldar. Hjúkrun í nútíma skilningi var heldur ekki til, heldur var um að ræða umönnun ófaglærða á forræði lækna. Húsakynni voru ekki heldur alltaf upp á það […]

Laugardagur 14.02 2026 - 15:14

Ég má ekki vera of sár eða reiður

Þrátt fyrir fyrirbænir og áköll hafa mín orð ekki heyrst í stjórnkerfinu hingað til. Fjöldi greina og erinda skrifuð um það sem betur mætti fara í heilbrigðiskerfinu. Ekki stuna frá þeim bæ. Ekki hlustað á tillögur til úrbóta og á það m.a. við um þróun og breytingar á starfsemi bráðamóttökunnar sem nú er mikið í […]

Miðvikudagur 17.12 2025 - 10:00

Sóttvarnaaðgerðir, almennar forvarnir og lækningar á Íslandi

Í gegnum tíðina og sl. aldir hefur læknisfræðin ásamt almennri velferð, ráðið mestu um aðgerðir gegn sjúkdómum okkar mannanna. Frumkvöðlastarfsemi (m.a. lyfjaiðnaðurinn) og vísindin ráðið för. Hér á landi fyrst með stofnun Landlæknisembættisins fyrir 265 árum. Stofnanir hafa orðið til og heilbrigðisstéttum fjölgað. Úrræði til lækninga og skilningur á forvörnum aukist mikið. Fyrir ekki svo […]

Föstudagur 20.06 2025 - 19:54

Innviðaöryggi og sjúkraflutningar á landsbyggðinni

Vegna umræðu um sjúkraflutninga á Suðurlandi í dag og viðbragðsmöguleika björgunaraðila vegna slysa og skyndilegra veikinda er rétt að árétta að víðar er pottur brotinn í þessum málum hér á landi. Þrátt fyrir margfaldan umferðarþunga og mikils fjölda ferðamanna hefur lítið verið byggt upp til að styrkja þessa þjónustu og á mörgum stöðum hefur þjónustunni […]

Laugardagur 31.05 2025 - 20:26

Að geta gert mikið úr litlu

Sagan á sér alltaf margar hliðar. Saga okkar sjálfra og Íslandssagan. Mín saga tengist m.a. læknisfræðinni sterkum böndum. Sögunni í nútíð og þátíð sl. tæpa hálfa öld. Eins með tilliti til forfeðra minna. Þar er ef til vill best að byrja þessa sögu. Ari Arason (1763-1840), (lang-lang-langafi minn) var læknir í Skagafirði á Flugumýri og […]

Fimmtudagur 27.03 2025 - 17:19

Mótefnaaðgerð gegn RS veirunni – ekki bólusetning.

Fréttir undanfarið ekki síst hjá fréttastofu RÚV https://www.ruv.is/…/2025-03-27-4500-ungborn-fai… um væntanlegar bólusetningar hjá ungbörnum gegn RS veirunni er mjög svo misvísandi enda ekki um eiginlega bólusetningu að ræða. Sennilega er Falsfréttanefnd ríkisstjórnarinnar sem stofnað var til í heimsfaraldri Covid 19 (m.t.t réttrúnaðar stjórnvalda og gegn upplýsingaóreiðu), sofandi. Í væntanlegum aðgerðum heilbrigðisyfirvalda og sóttvarnalæknis er hins vegar […]

Laugardagur 01.02 2025 - 20:05

Hin ógnvekjandi nýja „íslenska flóra“

  Undanfarin misseri hefur verið mikið fjallað um þá ógn sem samfélaginu öllu stafar af vaxandi sýklalyfjaónæmi helstu sýkingavalda mannsins og sem oft eru sameiginlegar bakteríur í flóru manna og dýra (svokallaðar súnur). Colibakteríur (E.coli, Klebsiella pneumonie) og klasakokkar eru nærtækastar. Vandamálið er víða úti í heimi orðið ískyggilegt og erfitt og kostnaðarsamt að meðhöndla […]

Mánudagur 13.01 2025 - 19:29

Fuglaflensan og Vatnsmýrin í dag

Við segjum stundum börnum ævintýri og hvernig konungssonurinn leystist úr álögum þegar prinsessan kyssti dauða svaninn í sögunni um Dimmalimm. Ekki það að í dag væru sennilega aldrei skrifuð ævintýri eins og Muggur gerði þegar hann skrifaði eitt frægasta ævintýri nokkurs Íslendings, Dimmalimm (1921). Sagan segir að hann hafi hugsað sér svaninn sem tákngerving íslensku […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn