Færslur fyrir ágúst, 2010

Mánudagur 09.08 2010 - 18:28

Skeytin tekin

Allir þekkja sögu fjarskipta þar sem morsið gegndi veigamiklu hlutverki, ekki síst þegar koma þurfti nauðsynlegum upplýsingum hratt og örugglega til skila. SOS morsið er sennilega frægasta ákallið um hjálp sem þarf að berast tafarlaust. Í sveitinni í gamla daga þurfti bóndinn alltaf að fylgjast með skeytunum nokkrum sinnum á dag, „taka skeytin“ og átti þá við […]

Laugardagur 07.08 2010 - 17:16

Glugginn minn

Mikið ósköp væri gaman að geta gert eitthvað svaka skemmtilegt og ævintýralegt, eins og t.d. skreppa í nokkra daga siglingu með skemmtiferðaskipi eins og hér sést og sem kom í heimsókn til okkar í Hafnarfjörðinn snemmsumars. Svona eins og einn hring kringum landið svo ég tali ekki um hnattsiglingu. Það vill svo skemmtilega til að glugginn á skrifstofunni […]

Miðvikudagur 04.08 2010 - 14:03

Heildarmyndin skýrari

Á síðustu dögum hefur heildarmyndin skýrst töluvert hvað varðar aðdraganda hrunsins og hvaða eðlishvatir í mannsskepnunni lágu þar á bak við. Kemur þar aðallega tvennt til þ.e.  græðgivæðing og einkavinavæðing. Í dag eru nefnilega tvær stærstu rætur vandans óðum að skýrast, annars vegar „skuldavandi stórskuldugra“ sem með hjálp bankanna og eftirlitsaðila settu ríkið á hausinn og hins vegar „þöggun og vöntun á […]

Mánudagur 02.08 2010 - 22:40

Afsakið hlé, gott fólk

Í gærkvöldi fylgdist ég með gamalli margverðlaunaðri Hollywood mynd frá 1961, Morgunverður á Tiffany’s, Breakfast at Tiffany’s. Í besta artriðinu, í sjálfu partýinu, þar sem allir voru kominir í gott stuð og ég líka bilaði útsendingin sem svo oft áður hjá RÚV. Fyrst myndin,  svo hljóðið og siðast textinn. Myndin hafði reyndar rúllað góðan tíma […]

Mánudagur 02.08 2010 - 10:54

Ef allt væri með felldu

Bílar og umferðin skiptir okkur nútímamanninn miklu máli, ekki síst á Íslandi þar sem oft er ekki hægt að treysta á annan ferðamáta nú orðið. Áður var það hesturinn sem var þarfasti þjónninn og ferðalaganna var örugglega vel notið. Nú er það bíllinn okkar með jafnvel nokkur hundruð hestöfl og umferðaröryggið skiptir mestu máli, enda […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn