Færslur fyrir júlí, 2011

Sunnudagur 31.07 2011 - 10:33

Gamla heilsuverndarstöðin, nýtt hlutverk

Nú eftir langa og rigningasama fríhelgi flestra landsmanna, flyst starfsemi Landlæknis og Lýðheilsustöðvar í gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg og starfsemin um leið sameinuð undir einum hatti Landlæknisembættisins. Það verður ánægjulegt að sjá nýjar rætur heilbrigðisvísinda skjóta föstum rótum með þeim gömlu í þessu húsi. Í húsi sem var vagga heilsugæslunnar í landinu og hýsti miðstöð sóttvarna, heilsuverndar ungbarna […]

Mánudagur 25.07 2011 - 13:17

Staða læknisþjónustunnar á Íslandi

Undanfarna mánuði hefur verið mikið rætt um vaxandi álag á Bráðaþjónustu Landspítala háskólasjúkrahús (LSH), minnkandi aðgengi að sérfræðiþjónustu hverskonar og aukna lyfjanotkun landans. Minna hefur farið fyrir umræðu um mikinn og alvarlegan skort á heimilislæknum á höfuðborgarsvæðinu um áraraðir og takmarkaðan aðgang að heilsugæsluþjónustu, sem undir venjulegum kringumstæðum ætti að veita grunnþjónustuna. Eins nú vaxandi atgerfisflótta […]

Sunnudagur 17.07 2011 - 10:33

Mávarnir í móunum

Einn daginn í vikunni var eitthvað svo allt öðruvísi í móunum mínum heima. Allt svo hljótt sem minnti mig helst á kyrrðina sem er svo algeng seint á kvöldin á veturna, í froststillum þegar himininn er líka heiðskýr í tunglskininu, en bara svartur. En nú var sólin hins vegar hátt yfir heiði og allt átti að vera […]

Þriðjudagur 12.07 2011 - 22:52

Þríhyrningar

Um helgina gekk ég ásamt konunni minni og nokkrum göngufélögum úr gönguhópnum okkar til margra ára, á fjall norður í Hjaltadal í Skagafirði sem ber nafnið Þríhyrningar. Fjall sem stendur vel undir nafni eins og myndin hér ber með sér. Svo einkennilega vill til að sumir hlutir í náttúrunni minna aðeins á stærðfræðina, þótt flestir geri það sem […]

Miðvikudagur 06.07 2011 - 11:28

Ósvöruðu bréfin

Sumt viljum við ekki vita af eða tala um vegna þess að það er svo óþægilegt fyrir okkur og aðra eða þá vegna einhvers sem að við skömmumst okkar svo mikið fyrir. Annað sjáum við einfaldlega ekki af því erum blinduð af eigin ágætum. Athafnir sem því miður eru allt of algengar í stjórn heilbrigðismála. […]

Mánudagur 04.07 2011 - 12:48

Svartur/rauður/gulur/grænn

Nokkur umræða hefur verið um hættuástand á Slysa- og bráðamóttöku LSH vegna of mikils vinnuálags á starfsfólk og álagið stundum skilgreint „rautt“ sem er hættuástand eða „svart“ sem er glundroðastigið og ætti helst ekki að geta orðið nema hugsanlega við alvarlegar hamfarir. Ábendingar hafa að sama tilefni borist frá talsmanni ungra lækna um óeðlilega mikið vinnuálag […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn