Í Kastljósþætti í gærkvöldi fengum við að kynnast afskaplega fallegri en um leið sorglegri sögu af tveimur hálfníræðum mönnum sem hittust í fyrsta skipti augliti til auglits en sem höfðu áttu sameiginlegt gamalt leyndarmál sem þjakaði þá á sitt hvorn háttinn mest allt þeirra líf. Hvor hafði sína sögu að segja, samt samofnar í örlögunum hvors annars eins […]
Margir velta nú fyrir sér merkingu fyrirgefningarinnar. Ekki síst þegar sá kallar eftir henni sem oftast telur sig veita hana. Þjóðkirkjan sjálf meðal þjóðarinnar. Kirkja sem hefur ekki aðeins brotið niður traust fórnarlamba kynferðisofbeldis innan veggja hennar um árabil heldur nú líka gagnvart flestum sóknarbörnum sínum. Öllum þeim sem fylgst hafa með atburðarrásinni síðastliðin ár í sinni góðu […]
Það er ekki á hverjum degi sem við fáum að heyra sögunna alla, leyndustu leyndarmál sem því miður fá allt of oft að liggja niðri. Þegar fólk er hreinlega efins að sannleikurinn þoli dagsljósið. Ein slík saga sem sögð var í gærkvöldi skiptir þó mig og þúsundir annarra Íslendinga afskaplega miklu máli. Ekki síst þar […]
Það er erfitt að koma orðum að því hvernig manni líður í jarðarför ættingja,vina og samferðamanna. Nú sækja þessi hughrif á mig af öðrum orsökum. Það er ekki vegna þunglyndis heldur þess dapurleika hvernig komið er fyrir þjóðfélagi sem ég átti þátt í að byggja upp. Það getur ekki annað en reynt á tilfinningarnar svo um munar þegar maður horfir í […]
„Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur„. Sólin er grundvöllur lífs á jörðinni og okkar mesti lífsgjafi. En sólargeislunum er misskipt og sólin sést ekki alls staðar allt árið um hring. Á Íslandi sést hún lítið hálft árið og geislarnir oft ansi veikir og landinn því oft fölur. Framleiðsla D-vítamíns í líkamanum sem er okkur öllum […]
Það er einkennilegt að vera staddur í uppáhalds stórborginni minni, New York á þessum degi. Borg sem ég hef oft heimsótt áður og sem hefur að mörgu leiti verið tákngervingur hins vestræna heims og alþjóðlegri en flestar aðrar, að minnsta kosti í mínum huga. Þar sem þú getur gengið á milli ólíkra menningarheima og flestir […]
Heilbrigðisþjónustuna hefur tekið langan tíma að byggja upp á Íslandi, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu með sjálfan Landspítalann í fararbroddi og þangað sem flestra leiðir liggja einhvern tímann á ævinni. Fátt er okkur mikilvægara í mestri neyð lífsins en gott sjúkrahús með góðri bráðaþjónustu, en líka góðri heilsugæslu og dvalarstofnunum fyrir aldraða um allt land auk […]
Margir látast árlega í umferðarslysum hér á landi auk þess sem hundruðir slasast alvarlega, oft af því einhver fór óvarlega eða sýndi af sér vítavert gáleysi. Þar sem hraðinn var of mikill miðað við aðstæður. Á einu augnabliki breyttust þannig aðstæður þúsunda manna og sem eiga um sárt að binda. Margar fjölskyldur í landinu, nánir […]
Nú má segja að sumarið sé nánast liðið og haustið að taka við. Sumarhitinn liggur samt ennþá í loftinu og jörðin er hlý og köld í senn. Nóttin heit en dimm. Haustið sem er svo fallegt með allri sinni litadýrð, en um leið sorglegt því það markar það sem koma skal. Og eftirsjá hvað tíminn leið […]
Líkamanum er oft líkt við musteri sálarinnar sem okkur á að þykja vænt um. Því er afskaplega mikilvægt að fara eins vel vel með þá byggingu eins og við getum, ekki síst yfirborð hennar og sem er mikilvægasta vörnin gegn umhverfinu. Sérstaklega sólinni sem allt elskar og vekur með kossi, eða hvað? Engin æxli eru algengari og […]