Ný rannsókn sem birtist í síðasta mánuði í Injury Prevention og sem fjallað er um í dag á MedScape sýnir að neysla svokallaðra orkudrykkja og sem nýlega hefur verið til umræðu hér á landi vegna mikillar sölu, eykur á ofbeldishneigð ekkert síður en áfengi. Rannsóknin var gerð í Boston árið 2008 og leitað var upplýsinga frá 2725 menntaskólanemum. Svarhlutfallið […]
Í mörg ár hefur verið boðið upp á bólusetningu gegn pneumókokkum (Streptococcus pneumoniae) fyrir eldra fólk (>60 ára) á 10 ára fresti og fyrir sjúklinga með alvarlega lungnasjúkdóma og ónæmisgalla (5-10 ára fresti). Tilgangurinn er að fækka þeim sem sýkjast af alvarlegum pneumókokkasýkingum, ekki síst alvarlegum lungnabólgum, blóðsýkingum og heilahimnubólgum af völdum þessarra stofna. Yfir 90 stofnar eru […]
Vegna umræðu í síðasta pistli um mikla svefnlyfjanotkun landans, endurbirti ég pistil minn um svefninn frá því í vor, „Svefnvandi þjóðarinnar“ með smá breytingum og staðfæringum. Nú er orðið ansi dimmt meiri hluta sólarhringsins og oft sést vel til tunglsins sem er að vissu leiti tákngerfingur svefns og rósemdar. Einnig drauma og dulúðar sem hugann nærir og gerir […]
Það er ekki ein báran stök í heilsufréttum þessa daganna. Á tímum þegar meira en helmingur þjóðarinnar er of þungur og allt of margir allt of feitir einnig. Um fjórðungur fullorðinna en líka um 6% barna þar sem um þriðjungur er líka of þungur. Umræða sem fer að verða pínulítið þreytt nema þar sem hún […]
Meira um D-vítamínið. Mál málanna í dag í heilbrigðisgeiranum og þar sem minna er talað um pólitík og deilur í fjármálaheiminum. Því öll viljum við geta lifað heilbrigðu lífi eins lengi og kostur er, þegar dægurumræðan í dag er löngu um garð gengin og gleymd. Þar sem andlega heilsan er ekkert minna mikilvæg en sú líkamlega og best að […]
Seint verður sagt að hunangið drjúpi af hverju strái hér á landi um þessar mundir. Þó má segja að annað hunang, gullið og fljótandi en sem við viljum ekki sjá, fari forgörðum í stórum stíl í hafið þaðan sem það spratt upp. Líka eitt af því nauðsynlegasta til að við gátum lifað heilbrigðu lífi um […]
Á síðustu árum hafa rutt sér til rúms ýmsar tækninýjungar sem manni hafði ekki órað fyrir að ættu eftir að sjá dagsljósið, jafnvel fyrir bara áratug síðan. Nokkrar hafa verið hér til umræðu á blogginu mínu áður og ennþá eru margar í mótun, sumar reyndar nokkuð umdeildar. Refeindatækninni hefur fleygt svo fram, ekki síst í […]
„Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur„. Sólin er grundvöllur lífs á jörðinni og okkar mesti lífsgjafi. En sólargeislunum er misskipt og sólin sést ekki alls staðar allt árið um hring. Á Íslandi sést hún lítið hálft árið og geislarnir oft ansi veikir og landinn því oft fölur. Framleiðsla D-vítamíns í líkamanum sem er okkur öllum […]
Margir látast árlega í umferðarslysum hér á landi auk þess sem hundruðir slasast alvarlega, oft af því einhver fór óvarlega eða sýndi af sér vítavert gáleysi. Þar sem hraðinn var of mikill miðað við aðstæður. Á einu augnabliki breyttust þannig aðstæður þúsunda manna og sem eiga um sárt að binda. Margar fjölskyldur í landinu, nánir […]
Nú má segja að sumarið sé nánast liðið og haustið að taka við. Sumarhitinn liggur samt ennþá í loftinu og jörðin er hlý og köld í senn. Nóttin heit en dimm. Haustið sem er svo fallegt með allri sinni litadýrð, en um leið sorglegt því það markar það sem koma skal. Og eftirsjá hvað tíminn leið […]