Fimmtudagur 06.01.2011 - 08:03 - FB ummæli ()

Stóra myndin

Í fréttum var nýlega greint frá 10 ára stúlku sem fann nýja óþekkta sprengistjörnu sem kallast öðru nafni supernova, í M100 stjörnuþokunni. Um er ræða sól sem springur og getur tekið áratugi fyrir ljósið að berast til jarðar. Í nóvember fannst önnur sprengistjarna sem sennilega var milljónsinnum stærri en sólin okkar og sem samkvæmt útreikningum sprakk árið 1979 (sjá meðfylgjandi mynd). Þar er nú í dag væntanlega stórt svarthol í geimnum.

Stundum heldur maður að það sé betra að vita ekki of mikið því þá verður maður oft svo agnarsmár. En gamalt máltæki segir, fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Verst samt hvað við leysum oft einföldustu verkefni í daglega lífinu illa af hendi, þrátt fyrir stóra drauma. Einhverntíman á samt það sama fyrir okkar sólu og sólkerfi að liggja og sýnt er á þessari ógnarfallegu mynd, að enda í endalausu svartnætti og algleymi.

Ef hins vegar 10 ára stúlka getur séð stóru myndina sem við sjáum ekki, er ekki öll nótt úti. Það eitt gefur vonir um betri framtíðarlausnir fyrir mannkynið, þegar þar að kemur.

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · Lífstíll

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn