Það eru vissulega gleðilegar niðurstöður að eitthvað skuli draga úr algengi tóbaksreykinga hér á landi og fram kemur í nýrri skýrslu Landlæknisembættisins sem kom út í gær. Tóbaksreykingar Íslendinga 15-89 ára minnkuðu þannig úr 14.3% 2011, niður í 13.8%, 2012. Vegna skrifa minna […]
Hér vil ég reyna að gera grein fyrir miklu mikilvægara málefni en Icesave dómsúrskurðinum sem við nú gleðjumst yfir, en hefði aldrei ráðið endanlegum úrslitum um afkomu okkar hvort sem er. Stundum erum við líka heppin og forsjónin okkur hliðholl, jafnvel þótt við höfum farið illa að ráði okkar. Í dag fögnum við sigri, en svo þarf ekki […]
Undanfarið hefur verið mikið fjallað um væntanlegt sölubann á munntóbaki í Evrópu og hér á landi, sérstaklega sænska snusinu og sem er blönduð og veikari tóbaksvara, en minna um höft á miklu sterkari og varasamari tóbaksvöru, íslenska fínkornótta neftóbakinu. „Íslenska ruddanum“ eins og hann er oft kallaður og sem er mest notaður sem munntóbak nú orðið […]
Miðað við ástandið í heilbrigðisþjónusunni í dag og stöðugar fréttir berast af, er ekki úr vegi að líta aðeins um öxl og ímynda sér hvað framtíðin getur borið í skauti sínu. Fyrir rúmlega 20 árum síðan þegar ég starfaði sem læknir á Slysa- og bráðamóttökunni á gamla og góða Borgarspítalanum sem þá hét, fékk ég afar minnisstætt hlutverk […]
Eftir nokkuð langt starf í heilsugæslu og víðar í heilbrigðisþjónustunni hef ég náð að kynnast þjóðinni frá ólíkum landshornum nokkuð náið á annan hátt. Kynnst aðeins samnefnara í hinni íslensku sál ef svo má segja, en einnig mörgum ólíkum sérkennum og eiginleikum. Oft dugnaði, nægjusemi og æðruleysi, en líka því þveröfuga og öfgafulla. Ekkert síður þó […]
HPV veiran (Human Papilloma Virus) veldur ekki bara kynfæravörtum (condylomata acuminata) sem eru mjög algengar meðal ungs fólks hér á landi, heldur líka flöguþekjukrabbameini að undangengnum forstigsbreytingum í leghálsi þúsunda kvenna á ári hverju, auk hratt vaxandi nýgengi flöguþekjukrabbameina í munnholi og við endaþarm hjá báðum kynjum um heim allan. Krabbamein sem í dag má fyrirbyggja að miklu leiti með betri […]
Seint eiga áramót eftir að verða mér minnisstæðari og þessi sem nú eru að líða. Eftir foráttu norðanbyl á Ströndum í lok ársins þar sem ég stóð læknavaktina og hugsaði stöðugt um óveðrið og hverjar afleiðingarnar gætu orðið í mannheimum. Eins um fjölskyldu mína fjær og von á sumum í heimsóknum. Þegar öll tæknin brast […]