Þessa mynd tók ég á morgungöngunni minni í morgun, áður en ég mætti til vinnu, og þegar ég lét hugann reika og dásamaði útsýnið og hreinleikann í loftinu. Eftir fréttir sl. daga, meira erlendis en hér heima að vísu, er maður alveg gáttaður á þeim trúnaðarbresti sem hefur orðið á milli matvælaframleiðenda og neytandans í Evrópu. Meðal tuga stórfyrirtækja sem telja að þeir geti boðið börnunum okkar, og jafnvel okkur sjálfum, hvað sem er og ég hef verið að skrifa um í síðustu pistlum. Hráefni úr liggur við sjálfdauðum hrossum sem fáir vita deili á og sem geta innihaldið allskonar skaðleg efni og lyf, fyrir utan möguleg smitefni, enda allt án nægjanlegs eftirlits.
Í dag er maður þannig þakklátur að eiga minna, en geta keypt miklu betri og öruggari matvöru sem framleidd er hér heima og sem staðist hefur og gott betur, allar öryggiskröfur hingað til. Og hvað veit maður um allskonar annað svínarí í öðrum matvörum í þessum evrópska bransa sem virðist hafa verið svo eftirlitslítill. Allskonar mengun við framleiðslu og önnur hættuleg efni í öðrum kjötvörum?
Áður hef ég oft rætt um hvað er mikilvægt að vanda sig í fæðuvalinu, og um íslenska fiskinn, lambakjötið og grænmetið, svo það helsta sé nefnt. Í dag ekki spurning, íslenskt á diskinn minn, og hugsum okkar gang hvað þessi málefni varðar þegar við horfum meir til EB landanna á næstu misserum og við hvað ástand þeir búa samanborið við okkur. Hvar er öryggi okkar markaða best borgið að lokum, og hvers virði er heilsan okkur í dag?
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2013/02/14/pip-gel-og-comi-gel-ogedin/
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2011/06/11/verstu-martradirnar/
http://www.guardian.co.uk/uk/2013/feb/16/horsemeat-scandal-victor-bout-firms
http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2013/feb/17/horsemeat-scandal-is-tory-party-crisis
Fleiri áhugaverðir nýlegri tenglar tengt efninu:
http://politiken.dk/udland/ECE1900332/foedevareskandaler-er-hverdag-i-kina/
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/avatarkjot-chillihneykslid-og-mjolkurduftshneykslid
http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2013/feb/17/horsemeat-scandal-supermarkets-food-supply
http://m.nzherald.co.nz/world/news/article.cfm?c_id=2&objectid=10866034