Það er áhugavert að velta fyrir sér breytingum á íslensku þjóðfélagi á einni öld. Í Kastljósþætti á mánudaginn var sagt frá einum fyrsta atvinnuljósmyndara landsins, Bárði Sigurðssyni sem tók flestar sínar myndir í Þingeyjarsýslunni í byrjun síðustu aldar. Ómetanlegar myndir sem nú eru til sýnis í Þjóðminjasafninu sem m.a. sýndu háa heimilismenningu á Íslandi í upphafi 20. […]
Hvort skyldi vera verðmætara á Íslandi, efnið eða andinn, veraldagæðin eða mannauðurinn? Svar við spurningunni um líf og dauða fer þó varla á milli mála. Ég er heimilislæknir og starfa líka sem sérfræðingur á Slysa- og bráðamóttöku LSH, 4-5 vaktir í mánuði á kvöldin og um helgar. Ég er með 16 ára sérnám í læknisfræði […]
Í dag var tilkynnt hverjir eru tilnefndir til Edduverðlaunanna 2011. Kvikmyndin Brim í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar fékk flestar tilnefningarnar og óska ég honum og Vesturporti til hamingju með þennan árangur. Kvikmynd af íslenskum veruleika eins og hann gerist kaldastur. „Hafið gefur, hafið tekur“. En það er ekki nóg að vera tilnefndur. Í fyrra var […]
Uppi á heiði var frosin jörð, aldrei þessu vant. Réttara sagt, rétt yfirborðið enda sökk maður stundum niður í drulluna sem undir lá. Ýmislegt minnir þó á að vorið ætti að vera á næsta leiti. Dagurinn er orðinn lengri og bjartari og eftirvæntingin að heyra fuglasöng og kvak vaknar. Ég er jafnvel farinn að sakna […]
Þessa vikuna stendur Lýðheilsustöð í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og barnatannlækna fyrir tannverndarviku. Tilefnið er ærið enda tannheilsa barna hvergi verri á Norðurlöndunum. Tannglerungsskemmdir barna eru taldar miklar hér á landi meðal annars af mikilli neyslu kolsýrðra og sætra drykkja. Rétt er að benda á frábært veggspjald til að átta sig á óhollustu drykkja sem við bjóðum […]
Vandamál tengt misnotkun lyfja sem eru ávísuð af læknum í oft góðri trú en sem eru síðan misnotuð til vímuefnanotkunar er alvarlegt heilbrigðisvandamál hér á landi, því miður. Jafnvel algengara en í ýmsum öðrum löndum sem við viljum bera okkur saman við. Ofnotkun metýlfenidatlyfja (Rítalíns og skyldra lyfja) voru til umræðu á læknadögun í vetur. Upp undir […]
Sitt sýnist hverjum um ágæti heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi og þá stefnumörkun sem hana varðar á síðustu árum. Í tilefni Læknadaga 2011 sem eru haldnir þessa daganna skrifaði ég pistil sem er birtur á visi.is í dag undir heitinu „Heilbrigðisógnir heimilanna“ og læt hann fylgja með hér á blogginu mínu. Þjóðfélagsgerðin hefur mikið breyst í aldanna rás og sálræn velferð skiptir […]
Enn og aftur þurfum við að hugsa okkar gang og hugsa framtíðina upp á nýtt. Stjórnlagaþing sem ekki hefur umboð þjóðarinnar en valdalaust og þeir ekki öfundsverðir sem þar ættu að sitja. Æðsti dómstóll hefur kveðið skýrt upp sinn dóm eins og hann gerði upphaflega á Þingvöllum fyrir 1000 árum. Við þann dóm þýðir ekkert að […]
Undanfarna daga hafa orkumál tengt sjálfbærri orkuþróun (sustainable development) verið mikið til umræðu. Katrín Júlíusdóttir iðnaðar- og orkumálaráðherra ætlar nú að leggja fram þingsályktunartillögu um orkuskipti í samgöngum með uppbyggingu græns hagkerfisins að leiðarljósi. Rafbílavæðing fyrst þjóða er raunhæfur möguleiki ef vilji stjórnvalda er fyrir hendi og myndi skipa okkur á fremsta bekk meðal iðntæknivæddra þjóða. Tækifæri sem […]
Það er sitthvað lög eða regla. Það vantar sem betur fer ekki lögin hér á landi en regluverkið, meðal annars hjá sjálfum löggjafanum, er oft sárlega ábótavant. Nú þegar sjálf lögreglan kvartar um úræðaleysi gagnvart óhæfum ökumönnum í umferðinni væri rétt að líta í baksýnisspegilinn og rifja upp þann losarabrag sem ríkt hefur á þeim bænum og […]