Það eru ekki miklar umræður á Íslandi um sparnað einstaklinga enda snýst allt um skuldir og afskriftir. Það vill oft gleymast að krónan með sínum höftum mun verða næstu kynslóð ótrúlega dýr þegar kemur að sparnaði, sérstaklega lífeyrissparnaði. Íslendingar hafa ekki sömu möguleika að dreifa áhættu og leita betri ávöxtunar, og þjóðir sem búa við […]
Það er athyglisvert að lesa hagvaxtaspá bandaríska fjárfestingabankans, Goldman Sachs, sem birtist nýlega. Þar er spáð hagvexti í heiminum á næsta ári upp á 4.6%. Mest af þessum hagvexti mun koma frá Asíu, Rússlandi og Suður-Ameríku, en í flestum þróuðum hagkerfum er spáð hagvexti yfir 2%, með fáeinum undantekningum. Þar er auðvita að finna Japan og […]
Ég óska lesendum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Kærar þakkir fyrir góðar athugasemdir og umræður á árinu sem er að líða.
Það er athyglisvert að bera saman nýleg skuldabréfaútboð Íbúðarlánasjóðs og OR. Vegnir vextir hjá ÍLS voru 3.60% en OR birtir vaxtakjör upp á 4.65% verðtryggt (nú er þetta ekki alveg sambærilegt þar sem ég hef ekki ítarlegar upplýsingar úr uppboðunum). Ávöxtunarkrafa fjárfesta er líklega um 100 punktum hærri hjá OR en ÍLS? Það er erfitt […]
Það eru víst ekki margir sem kannast við Wolfgang Schäuble á Íslandi, en hann er líklega einn valdamesti maður í Evrópu í dag. Wolfgang er fjármálaráðherra Þýskalands og var nýlega kosinn áhrifamesti fjármálaráðherra Evrópu, af breska dagblaðinu Financial Times. Þýskaland stendur enn aftur á hátindi efnahagsstjórnunar í Evrópu, landsframleiðsla mun aukast um 4% á þessu […]
Eftir rúm tvö ár er Icesave enn að þvælast fyrir mönnum og enn hefur ekki tekist að koma málinu í höfn. Ríkisstjórnin vill semja, stjórnarandstaðan vill málið fyrir dóm, Forsetinn vill nýja þjóðaratkvæðisgreiðslu en almenningur vill ekki sjá Icesave. Sem sagt, algjör pattstaða eftir tvö ár. Icesave er milliríkjadeila þannig að einhliða ákvarðanir Íslendinga duga […]
Nú hefur ríkisstjórnin farið 110% leið bankanna, þar sem höfuðstóll húsnæðislána verður færður niður að 110% af verðmati eigna. Þetta er að mörgu leyti skynsamleg leið svo fremi sem húsnæðismarkaðurinn er virkur. En hér á landi er í raun enginn virkur markaður með húseignir. Fáar eignir fara kaupum og sölum í beinhörðum peningum. Þetta skapar […]
Sjalda hefur einni þjóð tekist að umbreyta stórkostlegum forfeðra arfi í eina allsherjar skuldasúpu sem síðan á að afhenda næstu kynslóð á uppdekkuðu silfurfati án skýringa. Hér er Ísland í sérflokki eins og í svo mörgu öðru. Íslensk einkavæðing er víti til varnaðar. Hún mun skipa sér sess í sögubókunum og í fjármálafræðum sem dæmi […]
Skýrsla OECD um heilbrigðismál er athyglisverð. Þar segir að íslenska kerfið sé vel rekið og að Íslendingar fái einna mest út úr sínu kerfi miðað við útgjöld. Þetta eru góðar og slæmar fréttir. Þær þýða að hér eru litlir auka hagræðingarmöguleikar í heilbrigðismálum, allur frekari niðurskurður verður að koma í formi minni og óöruggari þjónustu […]