Sæstrengur sem mun flytja rafmagn til Bretlands mun mala gull og það vita gamlir og nýir íslenskir fjármálaspekúlantar. Þeir rembast nú eins og rjúpan við staur að sannfæra sauðsvartan almúgann og íslenska blaðamenn um að aðeins þeir hafi aðgang að fjármagni fyrir slíkt verkefni – þeir þekki rétta og áhugasama „aðila erlendis“, heitir þetta. Gríðarleg […]
Samtök atvinnulífsins leggja mikla áherslu á að allir verði samferða í gerð kjarasamninga. En er það skynsamlegt? Krónugeirinn er í engu standi til að hækka laun og það sama á við hið opinbera. En útflutningsgeirinn sem fær sínar tekjur í alvöru gjaldmiðli er í allt annari stöðu og best reknu fyrirtækin sem eru með skuldir […]
Forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, er einn af fáum ráðamönnum sem tala af skynsemi. Það er alveg rétt hjá honum að það er krónan sem hefur rústað fjárhag margra heimila í landinu. Heimili landsins eiga flest við launavandamál að etja sem hefur leitt til vanda við að greiða af lánum. Sá forsendubrestur sem varð hjá heimilunum […]
Krónan er sem ópíum. Í hruninu linaði hún þjáningar og var rómuð sem töfralyf, en aukaverkanirnar eru nú farnar að segja til sín. Stór hluti heimila nær ekki endum saman um hver mánaðarmót og þessi hópur er hlutfallslega miklu stærri hér á landi en í þeim ESB löndum sem verst urðu úti í bankakreppunni, eins […]
Margir eru farnir að gleyma Icesave og halda að best sé að geyma það niðri í skúffu. En á meðan Icesave er óleyst, er aðgangur að erlendu fjármagni á viðráðanlegu verði nær enginn, þar með er ekki hægt að fjármagna tækifæri fyrir nýja kynslóð. Það er engin framtíð fyrir unga fólkið að borga skuldir foreldar […]
Í framhaldi af umræðum sem hafa spunnist hér á Eyjunni í kjölfar síðustu færslu minnar um gjaldþrotalögin, tel ég rétt að útskýra mál mitt ögn betur hvað varðar framtíð áhættustýringar innan fjármálastofnanna. Léleg áhættustýring fyrir hrun, gerði skuldavandann hér verri en hann hefði orðið annars. Bætt áhættustýring er löngu tímabær enda leggur FME mikla áherslu […]
Ný gjaldþrotalög virðast um margt góð. Þessi lög munu veita lánastofnunum gríðarlegt aðhald. Aðeins verður hægt að lána til þeirra einstaklinga sem standast strangt og heilstætt áhættumat. Gamla greiðslumatið mun heyra sögunni til og það sama á við uppáskriftir ættingja. Líklegt er að svona gjaldþrotalög kalli á áhættumat eins og gerist í Bandaríkjunum, þar sem […]
Hugmyndir mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um að banna flutning á sálmum í skólum borgarinnar er skerðing á tjáningarfrelsinu. Rök Margrétar Sverrisdóttur, eins og þau birtast í Morgunblaðinu í dag, eru nákvæmlega þau sömu og foreldrar í Bandaríkjunum notuðu til að banna þróunarkenningu Darwins í sumum grunnskólum þar. Hún segir: „Meginatriðið er þetta að virða þarf rétt foreldra […]
„En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Gnarr borgarstjóra að banna skyldi alla jólasálma í grunnskólum Reykjavíkur.“ En hvað er sálmur? Hver ákveður það? Ef banna á jólasálma í grunnskólum, verður þá ekki að banna þjóðsönginn okkar „Ó, guðs vors lands“ eftir Mattíhas Jochumsson, sem er jú kristilegur sálmur? Og hvað […]
Ef við göngum ekki inn í ESB, sem allar líkur eru á eins og staðan er í dag, munum við enda uppi sem efnahagsleg nýlenda Noregs og norska krónan mun útrýma þeirri íslensku. Enginn verður meiri Þrándur í götu fyrir efnahagslegri endureisn hér á landi í framtíðinni en Noregur. Efnahagslega hefur Noregur allt sem við […]