Yðar einlægi varaþingmaður fór í dag í ræðustól alþingis og þakkaði Sjálfstæðismanninum Ástu Möller í einlægni og alvöru fyrir það sem hún sagði í sjónvarpsviðtali í gær. Þar viðurkenndi Ásta að hún ætti sína sök á þeirri atburðarás sem leiddi til hrunsins í haust og bað kjósendur sína og almenning allan afsökunar á því að hafa ekki staðið sig nægilega vel sem alþingismaður í aðdraganda hrunsins og þegar kreppan skall á.
Ég meinti þetta. Ásta Möller gerði það í gær sem aðrir hafa fæstir þorað. Geir Haarde hefur enn ekki komist lengra en að segja: Hafi ég gert mistök …, og: Maybe I should have.
Í mínum flokki hafa forystumenn ekki heldur gert nógu góða grein fyrir sínum þætti í þessu öllu saman. Vissulega nær ábyrgð Samfylkingarinnar aðeins til 18 mánaða meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað í 18 ár. En mitt fólk átti að taka mark á viðvörunum, láta vita, grípa miklu fyrr fram í hagstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfur er ég auðvitað varaþingmaður og hef ekki tekið þátt í ákvörðunum framkvæmda- eða löggjafarvaldsins um efnahagsmál. En þegar ég skoða málið frá eigin sjónarhóli er niðurstaðan að ég átti að vera gagnrýnni á mitt fólk, spyrja grimmar, fylgja eftir prýðilegri efnahagsstefnu okkar frá í kosningunum sem var sett niðrí skúffu eftir hjónabandið á Þingvöllum. Hugsa minna um flokkinn, meira um fólkið. Afsakið. — Ég hef hinsvegar engan móral yfir eigin verkum frá í haust og er stoltur yfir að hafa verið með í fundinum þegar grasrótin greip í taumana í Þjóðleikhúskjallaranum.
Í umræðunni á eftir kom auðvitað upp hefðbundið karp þar sem Sjálfstæðismenn beindu spjótum sínum að Samfylkingunni og öfugt. Við losnum seint við svoleiðis orðaskipti á þinginu. Samt voru þingmennirnir margir að reyna að skoða málið einlægt og heiðarlega – einsog Ásta. Það er skref.
Ég held að við séum mjög stutt komin í þessu ferli, og verðum meðal annars hvert og eitt að horfa í eigin barm. Hinar efnislega ástæður hrunsins má ekki síst rekja til kvótakerfisins, ofurvirkjanaframkvæmda og illa undirbúinnar bankasölu. En meginástæðan eru hugmyndalegar villigötur þar sem Íslendingar – stjórnvöld og bisnessmenn auðvitað, en líka stórir hópar almennings – tóku trú nýfrjálshyggjunnar á græðgi og sérhagsmuni sem hreyfiafl samfélagsins en misstu sjónar á gömlum gildum úr samfélagi bænda og sjómanna hér fyrrum: Þrautseigja, nægjusemi, samtök og samhjálp. Og kapp með forsjá.

Mörður Árnason

Þú átt þín ábyrgð á því hvernig komið er. Það er fái jafn gagnlausir að benda á lausnir en tala þeim mun meira í lausnum. Sú lausn var ekki að bjóða til kosninga eins og þú og fleiri óskuðu eftir, í dag er enginn að vinna að neinu heldur í einhverri fegurðarsamkeppni, annað hvort fyrir kjósendum innan síns eigin flokks eða öðrum. Þetta á við um alla flokka.
Ég held að þú ættir að staldra stutt við í kjökrinu, heldur snúa þér að því sem skiptir máli og benda okkur á lausnir og vinna að þeim, hvernig heimilin og fyrirtækin eiga að komast í gegnum þetta.
Gott blogg. Ég virði það við þig að vera heiðarlegur og hafa hagsmuni fólksins að leiðarljósi. Einnig er ég ánægður með þáttöku þína í „uppreisninni“ í Þjóðleikhuskjallaranum. Nú langar mig að spyrja þig eftirfarandi: Ertu sammála formanni þínum og forsætisráðherra um það sem þær tilkynntu á blaðamannafundi fyrir nokkrum dögum síðan? Hvaða hagsmunir voru þar kynntir?
Að síðustu legg ég til að atvinnulausir verði fengnir til að reisa grátmúr við Alþingishúsið þar sem alþingismenn gætu iðrast og sett fram bænir sínar um bót og betrun. Þessi grátmúr mætti vera færanlegur þannig að hægt væri að flytja hann milli fjármálastofnanna og á aðra staði eftir ástæðum.
Svo ég skrifi þetta svo að þetta skiljist, hættu að kjökra í sandkassanum og farðu að moka flórinn. Þar eru verkefnin.
Iðrun Ástu er djúp.
Var hún á mála hjá Björgólfi eða Björgólfur hjá henni?
http://pressan.is/Pressupennar/Lesagrein/226
Þarf hún ekki að reka þetta af sér konan?
Grein pressunnar og t.d. þetta:
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=106042
Tómas. Svo ég skrifi þetta svo þetta skiljist, ef það væri búið að nauðga mér í rassgatið, þá myndi ég meta það við naugðarann ef hann gæfi mér eina mínútu af lífi sínu í það að biðjast afsökunar.
Ég myndi síðan vilja að einhverjir aðrir en hann myndu hlúa að sárum mínum og skrifa lögregluskýrslu.
Að segja bara „sorry en ég ber líka ábyrgð og sé eftir því“ er ekki nóg. Það er mógðun við hinn venjulega Íslending. Núna er þessi stefna Ástu og fleiri að koma í bakið á starfsmönnum heilbrigðisgeirans með einni mestu launalækkun í sögu Landsspítalans.
Þú Mörður átt þinn hluta af þessu líka, ef ekki persónulega þá pólitískt séð.
Hvað með þína ábyrgð. Og ég vona að þú skiljir hugtakið „pólitísk ábyrgð“ betur en flestir kollegar þínir gera.
Bestu kveðjur
Elwiss
Já, Elwiss, og fleiri — um mína eigin ábyrgð er fjallað í pistlinum og í orðaskiptunum á þinginu. Held nefnilega í fullri alvöru að menn verði að spyrja sjálfa sig líka — þótt hin almenna umræða megi ekki stöðvast í allsherjar syndajátningum. Ég gat staðið mig betur sem flokksmaður og varaþingmaður, og hefi átt að vera leiðinlegri við mitt fólk en ég jafnvel var. Hinsvegar fór ég í mótmælin og var í þeirri grasrót sem loksins tókst að skipta um ríkisstjórn, meðal annars i Þjóðleikhúskjallaranum. Og býð mig nú fram til að taka meiri ábyrgð. Ef í athugasemd þinni felst áskorun um að ég segi af mer sem varaþingnmaður eða hætti við prófkjörsframboð — ja þá er Ingjaldsfíflið farið að dreifast víðar en ég ætlaði. Er ekki eðlilegt að þeir standi framarlega á endurreisnartímum sem risu upp gegn vitleysunni? — þótt það hefði svo sannarlega mátt vera fyrr og af minni kurteisi í garð flokksforystunnar.
Að mörgu leyti málefnalegur pistill, Mörður.
Gætum samt að því að þó einn biðjist afsökunar er ekki þar með sagt að öðrum sé veitt syndaaflausn.
Vissulega brugðust yfirvöld eftirlitsskyldu sinni en er þeim þá einum um að kenna? Aki einhver óvarlega og valdi slysi má kannske segja að lögreglu, ökukennara, foreldrum og öðrum fyrirmyndum sé að einhverju leyti um að kenna og þá er rétt af þeim að taka á sig þá sök. Meginsökin er samt alltaf ökumannsins sjálfs.
Sama gildir um þá sem fóru óvarlega með fé okkar. Bankamenn, útrásarvíkingar, misvitrir hag- og viðskiptafræðingar, svo eitthvað sé nefnt. Stóra sökin er þeirra og þó það sér virðingarvert af Ástu og þér og svo mörgum öðrum að viðurkenna mistök sín mega stjórnmálamenn ekki axla alla ábyrgð. Það er einfaldlega ekki réttlátt.
Þar fyrir utan var öll þjóðin á neyzlufylleríi… og nú veit ég að ef einhverjir lesa þetta munu margir þeirra æpa upp: „Ekki ég!“ Það er óþarfi að taka svona fullyrðingar persónulega en svona var þetta.
Þá má einnig rifja upp að þegar yfirvöld vildu eitthvað flensa í auðmenn og hringa þá voru alltaf einhverjir tilbúnir að rísa upp á afturlappirnar fyrir þeirra hönd og sýna klærnar.
Já, þjóðarsálin getur vissulega verið hverful og auðblekkt.
Takk fyrir gott svar Mörður.
Ég var ekki að ýja að einu né neinu. Þú mátt segja af þér ef þú telur það vera rétt. En ef ég hefði ætlast til þess hefði ég sagt það beinum orðum.
Ég hafði þetta svona tvírætt ef svo mætti segja til að reyna koma því á framfæri að það getur enginn verið öruggur. Eins og þú réttilega segir sjáflur, þá verða allir að líta í eigin barm.
Ef þú hinsvegar ætlar að fara fram og taka meiri ábyrgð, þá áttu að byrja strax að sýna fram á það. Trúverðugleikans vegna, ekki bíða með það þangað til „síðar“ eða „þegar þar að kemur“.
Og eitt enn sem þú Mörður, mátt fá hrós fyrir, það er þessi spjallþráður.
Það eru allt of margir pólitíkusar sem banna kommentakerfið á sínu bloggi.
Þeir þora ekki að hlusta á almenning.
I have a first generation, and I don’t think that I need to buy a 3G, the only thing that I am gaining is GPS. I just want to know what you think about the Iphone, if you own one or not.
________________
[url=http://unlockiphone22.com]iphone 3g unlocking[/url]
I need a new phone and I’m looking for either a Curve or an Iphone.. I was wondering if there’s a difference between the browsers between the two.. Quality, images etc.. Would you describe it to me? Thanks
________________
[url=http://www.stealthoutmyride.com/forum/index.php?action=profile;u=56]unlock iphone 3g[/url]
I’m planning on buying an 8gb iphone. I am already a customer for At&t and want to know a few things. 1) can i put my old sim card into the iphone and still use it? 2) How much will i pay for a new 8gb iphone with no contract? 3) will i have to pay more per month than what i’m paying now? 4) if you have an iphone, is it worth it?
________________
[url=http://chr09.bleublog.lematin.ch/apps/controlcomment/index.php?comment_id=35616444&mhash=0b583b78bb86d81fd8da5b906d47faea440d8e2f]unlock iphone 3g[/url]
I have a motorola v197 phone. When i send a text is my location broadcasted on an iphone?
________________
[url=http://unlockiphone22.com]unlock iphone[/url]
I am about to buy a iPhone but it has a broken sleep button. Does anyone know how to fix that? Thanks!
________________
[url=http://unlockiphone22.com]unlock iphone[/url]
I am 18 years old and I am considering trading currencies as a home based business. I’ve had practice with ordinary spot forex and find it okay. I want to know what is better if I was to trade ordinary spot forex or currency options? Which is better, and which has the best chance of you becoming successful and becoming a millionaire out of?
[url=http://forexrobot-review.info]best forex software[/url]
There are so many, what are the best Forex Trading Platforms, particularly for a new trader?
[url=http://forexrobot-review.info]best forex software[/url]
Acceptable post, your column could really help me in my work. Hopefully this will advice increase my traffic more. Thanks for sharing.
I have web site http://wwidetrader.blogspot.com ecn and metatrader
This partnership makes Discover Card the most widely accepted American card in. How To Pay Down Payday Loan Debt. Our payday cash advances are easily acquirable for all kinds of urgent cash. [url=http://viiumft.rahuketu.net/map.html]first cash advance[/url] This site is dedicated to providing you with. Need cash Apply for our payday loan in Utah state No fax no credit checks. One of the first things that you39ll notice when you start looking for a cash.
Online auction transactions while still the majority of Internet fraud. [url=http://binnaz.freehostia.com/map.html]ace cash advance[/url] Pay down your debt. I am currently employed or I receive recurring income regularly. Need cash quickly Get a bad credit cash advance up to $1500 against your pay. Searches related to Cash Advance cash advance card cash america bad s cash. Senior Services Synagogues Utilities.
A $1000 payday loan can be a lifesaver during an emergency but you don39t need an. [url=http://dmashatwd.freehostia.com/map.html]allied cash advance[/url] Providing payday loans and cash advances to. Internet Banking Deals Citibank is offering a free Ipod when you open up a. The company opened 17 company-owned stores including 10 ACE Cash Advance stores. Cash advance loan for most emergency cash needs. Looking for Great American Cash Advance Jobs See currently available job.