Nú geta allir komist ókeypis heila viku í orðabækur og önnur gagnasöfn á [snara.is] – ég hvet menn eindregið að prófa, hef góða reynslu sjálfur sem áskrifandi. Þarna er Íslensk orðabók, stóra ensk-íslenska, danska og franska og margar aðrar – en líka Íslendingasögurnar og Matarást Nönnu Rögnvalds. Hentugt og einfalt. Þetta eru vefbækur, góðar að fletta upp í þótt þær komi seint í staðinn fyrir prentgripina til lestrar og íhugunar.
Svo eru til rafbækur, þeim hleður maður niður í sérstök tæki sem ég hef kallað að gamni bókhlöðu – af því æpoddinn heitir stundum tónhlaða á íslensku – en sennilega er rithlaða betra orð um þetta (sjá t.d. www.bookeen.com). Rithlaðan er létt og þægileg fyrir ferðalög og flutninga, sniðug fyrir skólafólk til dæmis sem þarf að hafa með sér textann í skólann og heim, en ekki síður fín upp í sumarbústað eða í gönguferð á Hornströndum.
Ég veit ekki bara svona mikið um þetta vegna þess að á bak við Snöruna eru gamlir samstarfsmenn mínir úr orðabókarstörfum, Laufey og Marinó, sem ég óska til hamingju! heldur af því að við Helgi Hjörvar höfum flutt á þingi tillögu um að þessi rit nýrrar tækni beri sama virðisaukaskatt – 7% – og prentaðar bækur og hljómdiskar, en ekki 24,5% einsog nú. Þetta er auðvitað réttlætismál og fræðilega skynsamlegt (í skattaspeki og viðskiptafræði byrja menn að tala um samkeppni staðkvæmdarvöru þegar svona ber á góma, það er kók og pepsí) en líka menningarmál og framhald á þeirri íslensku hefð að vera snöggur að tileinka sér nýja tækni. Þegar einstaklingstölvurnar komu (= fólkstölvur) var felldur niður á þær söluskattur í nokkur ár til að ýta undir almenna tölvuvæðingu á landinu.
Þetta litla frumvarp hefur fengið talsverð viðbrögð sem sýna mér að vef- og rafbókatæknin er mun útbreiddari en ég hélt meðal landsmanna. Úr einstaka barka heyrist að svona frumvörp séu ekki á réttum stað i miðri kreppu þegar frekar þurfi að auka skatta en að lina. Ég held að þessi breyting drægi ekki úr heildartekjum ríkisins af sköttum á rit og bækur því hún mundi einmitt stuðla að meiri sölu – og minna svindli einsog alltaf er hætta á í jaðartilvikum.
Í sama frumvarpi lögðum við svo til að samanbrotin kort bæru sama virðisaukaskatt og kort með gormum – ! þ.e. að 24,5% vsk. á venjuleg kort lækkaði í 7% einsog kort í bókarformi, til dæmis vinsæl vegakortabók frá MM eða Vegahandbókin góða sem Örn og Örlygur byrjuðu með.
Ég kannast við það sem gamall aðstoðarmaður úr fjármálaráðuneytinu að það verður að fara gætilega og hafa góða yfirsýn í skattamálum því víða spretta jaðartilvikin. Mér sýnast samt fáir neita því að hér séu á ferðinni sjálfsagðir hlutir.

Mörður Árnason

Rita ummæli