Færslur fyrir september, 2012

Laugardagur 29.09 2012 - 08:06

Staðirnir sem tengja okkur

Almannahagur á að ráða miklu meira en nú er venjan við ákvarðanir um skipulag og framkvæmdir í hverfum og kjörnum þar sem byggðin er gömul eða merkileg af öðrum ástæðum, þar sem svæðið sjálft og sögu þess má telja mikilvæga sameign allra íbúa í sveitarfélaginu og í sumum tilvikum allra landsmanna. Með því að gefa […]

Fimmtudagur 27.09 2012 - 14:02

Siðbót á alþingi

Í frumvarpi sem við Valgerður Bjarnadóttir og níu aðrir þingmenn höfum lagt fram á þinginu er gert ráð fyrir að alþingismenn hætti með öllu að skammta sér laun. Þetta er í þriðja sinn sem við Valgerður flytjum frumvarp um kjör þingmanna, og nú er von til að eitthvað gerist – vegna þess að margir þingmenn […]

Miðvikudagur 26.09 2012 - 08:17

Svona eiga sýslumenn að vera

Þótt ég sé eldheitur aðdáandi Jóhönnu Sigurðardóttur í pólitík og viti að margt hefur breyst undir hennar forustu síðustu ár er ég ekki öðrum Íslendingum trúaðri á skilvirkni og vinnuhraða í Stjórnarráði Íslands. Þessvegna kom það mér ánægjulega á óvart þegar forsætisráðherra svaraði fyrirspurn frá mér á þinginu um mótun málstefnu í stjórnarráðinu. Alþingi samþykkti sérstakan […]

Mánudagur 24.09 2012 - 08:47

Höfuðborgarsamning!

Það þarf að gera höfuðborgarsamning, milli Reykjavíkur og ríkisins. Þar eiga að koma fram þær sérstöku skuldbindingar sem borgin hlýtur að standa við sem höfuðborg lýðveldisins en á móti verður að vera tryggt að forystumenn í ríkisstjórn og á alþingi taki tillit til þeirrar ábyrgðar sem á höfuðborginni hvílir – og hætti að líta á […]

Laugardagur 22.09 2012 - 22:03

Síðasta bók höfundar

Ljóðabók eftir Jónas Þorbjarnarson kom út í vikunni, heitir Brot af staðeynd, og þarna fer þroskaður höfundur sem ekki hikar við að deila með okkur brotum frá ýmsum tímum ævi sinnar af verðskulduðu sjálfstrausti, fer með okkur út um heiminn talsverðan spöl öðru hvoru, í Alpafjöll meðal annars og einusinni alla leið til Gvatemala, en […]

Fimmtudagur 20.09 2012 - 17:25

Spjallað við Styrmi

Yðar einlægur naut þess heiðurs að vera í hádeginu framsögumaður á fundi Heimssýnar um meint andlát umsóknarinnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hinn framsögumaðurinn var Styrmir Gunnarsson . Þetta var skemmtilegt, bæði að kynnast Heimssýnarfólkinu og rökræða við Styrmi – það hef ég reyndar gert oft áður yfir Morgunblaði fyrri tíma, en aldrei að honum […]

Miðvikudagur 19.09 2012 - 17:51

Lærdómar af Zoëga-málinu

Þeir Björn Zoëga og Guðbjartur Hannesson hafa nú gefist upp á launahækkuninni góðu fyrir aukastörf forstjórans við lækningar. Þá er að vona að Björn haldist í vinnu þrátt fyrir lélegu launin. Getur kannski kennt okkur sitthvað. Annarsvegar að hafi menn markað sér stefnu þá á að standa við hana, jafnvel þótt hún sé fyrst og fremst táknræn […]

Þriðjudagur 18.09 2012 - 10:54

Evra eða haftakróna

Megintíðindin úr skýrslu Seðlabankans um gjaldeyriskosti (hér, 622 bls.) eru þau að þeir séu tveir. Annarvegar er það evran eftir inngöngu í Evrópusambandið, hinsvegar krónan með höftum. Aðrar tillögur fá falleinkunn í skýrslunni, að taka einhliða upp dollara, norska krónu, svissneskan franka o.s.frv. – eða þá evru án aðildar, að halda krónunni með fastri tengingu […]

Föstudagur 14.09 2012 - 14:29

Hvernig fiskveiðistjórnarfrumvarp?

Steingrímur J. Sigfússon íhugar nú hvernig nýtt fiskveiðistjórnarfrumvarp á að líta út. Eftir þrjá haustfundi í karlanefndinni góðu er komin greinargerð (hér) þar sem fjórir af körlunum fimm gera grein fyrir því um hvað þeir eru sammála og um hvað ekki. Og hafið er túlkunarstríð um framhaldið – Einar K. Guðfinnsson úr Sjálfstæðisflokknum segir að […]

Fimmtudagur 13.09 2012 - 10:01

Repúblikanar, stefnuræða og sósíalismi

Hér er framlag yðar einlægs til umræðna um stefnuræðu forsætisráðherra í gær (mynd hér). Í drögum var þetta miklu lengra — svo sker maður úr gáfulega aukakafla og alla fyrirvara og seming, bætir inn molum sem detta inn í umræðunni sjálfri, og að lokum hrynja burt setningar í kapphlaupi við tímann: 5 mínútur. Þetta varð samt […]

Höfundur

Mörður Árnason
sjálfstætt-starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður. Netfang: mordurarna@gmail.com. Vinir velkomnir á Fb.:
www.facebook.com/mordurarna.
RSS straumur: RSS straumur