Það virðist dýrkeypt áramótaleikrit í gangi í fjölmiðlum vegna nauðsynlega spaslvinnu á gamla ónýta þjóðarsjúkrahúsinu á Hringbraut og sem kosta mun okkur að lokum meira en nýtt með fyrirhuguðum bútasaum. Ekkert nýtt hefur í raun komið fram í málinu varðandi núverandi ástand og myglu húsnæðisins og staðsetninguna á þröngri og gömlu Hringbrautarlóðinni í Miðbænum/Vesturbænum þekkja allir. Nýbyggingamöguleikar þjóðarsjúkrahúss á besta stað, með hraðari framkvæmdum og fyrir minna vegna hagkvæmnisáhrifa og flest nágranaríki framkvæma í dag þekkja hins vegar færri, en sem samtökin SBSBS hafa margoft bent á sl. ár.
Leikurinn nú er því í versta falli ljótur og sérsniðinn af þrýstingi sérhagsmunahópa fyrir að flýta framkvæmdum á Hringbrautarlóðinni, hvað sem það kostar að lokum. Í raun á heilsuspillandi stað og sem er ómögulegur út frá aðgengis- og öryggissjónarmiðum. Einskonar skollaleikur um nauðsynlegasta heilbrigðismál þjóðarinnar til framtíðar og sem enginn stjórnmálamaður eða ríkisfjölmiðill minntist á í áramótadagskrá sinni. Á einu mesta hagsmunamáli þjóðarinnar. Stjórnvöld hafa enda í raun verið helsjúk á geði hvað þessi mál varðar sl. ár og taka engu tiltali. Grafið sér þess í stað dýpri og dýpri gröf, ár eftir ár og sem er að verða þjóðinni að dýrkeyptum harmleik. Eins og undir álögum eða undir göldrum – Garún, Garún…