Er stundum í lagi að keyra yfir gatnamót á móti rauðu ljósi? Jafnvel auka umferðarhraðann til að greiða fyrir umferð á þjóðvegunum, bara þessa einu helgi?
Ferjan Akranes hefur leyfi Samgöngustofu til tilraunafarþegasiglingar í 6 mánuði sem er skilyrt milli hafna Reykjavíkur og Akranes.
Af því það er þjóðhátíð nú í Eyjum að þá grípur samgöngumálaráðherra fram fyrir hendur forstjóra Samgöngustofu sem áréttað hefur skýrt að leyfið gildir ekki fyrir farþegasiglingar til Eyja og þar sem innsiglingin getur verið mjög varasöm, sem og hún getur verið einnig í Landeyjum. A.m.k. gjörólík því sem aðstæður eru í Reykjavíkurhöfn og á Akranesi, auk þess sem Akranesferjan er tvíbitna og því væntanlega með ólíka eiginleika í slæmum sjó.
Er stundum ástæða að gefa eftir með lög og reglur eina helgi og leyfa eins og nú fyrirvaralaust nýja tilraunafarþegaflutninga með á annað hundrað farþega (mest ungmenni) á nýjum og varasömum slóðum, bara að því að er þjóðhátíð í Eyjum og slá um leið rækilega á hendur eftirlitsaðilans sem vinnur sitt verk af kostgætni og sem hafði úttalað sig um áhættumatið?