Stjórnvöld ætla að fara leyfa innflutning á ófrosnu kjöti erlendis frá, oft í lekum umbúðum og smitar þá auðveldlega frá sér sýklalyfjaónæmar bakteríur allt í kring, í kjötborðinu og jafnvel á aðrar nærliggjandi vörur eða í margnota innkaupapokann okkar. Sem frosið kjöt gerir þúsundfalt minna!
Álíka viturleg ákvörðun og leggja til að handþvottur sé óþarfur sem og aðrar skynsamlegar almennar smitvarnir gegn næmu sjúkdómunum okkar og sem í þokkabót verða nú miklu sýklalyfjaónæmari en áður á Íslandi!!!!
Já, til hvers sprittum við hendurnar milli sjúklinga á spítölunum ef við fáum svo bara slæmu bakteríurnar á hendurnar í kjötborðinu hjá kaupmanninum og í margnota innkaupapokann sem við erum hvött til að nota.
“ONE HEALTH” – er mál sem flestir fjölmiðlar Íslands eiga erfitt með að skilja m.a. RÚV ohf. eða vilja ekki vegna hagsmunatengsla við Samtök verslunarinnar, tengt auglýsingatekjum sem hart er barist um þeirra á milli. Manna og dýraheilbrigði eru ar hins vegn nátegnt hverju öðru hvað almennar sýkingarvarnir varðar, eða að 60% segir Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO).
Auk þekktra matarareitrunar sýkingarvalda eins og Kamphýlóbakter og Salmonellu (jafnvel sýklalyfjaónæmra) sem mesta athygli fær þessa daganna, snýr þetta ekki síður að þætti sameiginlegrar “eðlilegrar” nærflóru dýra og manna (í görn, loftvegum og á húð) eða svokölluðum súnu-bakteríum, eins og t.d. E.coli og klasakokkum og sem geta fundist sýklalyfjaónæmir (ESBL og MÓSAR) í allt að helmingi eldisdýra erlendis og í vissum tilvikum orsakað sýkingar sem geta verið illviðráðanlegar vegna sýklalyfjaónæmisins. Klasakokkarnir geta til dæmis borist með í allt að helmingi eldissvína frá Danmörku (Samfélags-MÓSAR) og coli-bakteríuranar í allt að þriðjungi kjúklings frá Svíþjóð (ESBL) og nýleg dæmi sanna. Sýklar sem smitast mjög auðveldlega í mannaflóruna við meðhöndlun á ófrosnu kjöti sérstaklega og ef t.d. umbúðir leka og eins ef ekki er gætt 100% hreinlætis við hverskonar handfjötlun kjötsins í verslunum og öllum flutningi.
Landbúnaðarmál snúa því jafnframt að mikilvægustu heilbrigðis- og lýðheilsumálum þjóðarinnar og sem ekki er hægt að fara með að hentisemi markaðshyggjunnar hverju sinni og nýlegt frumvarp landbúnaðarráðherra um frjálsan innflutning á fersku erlendu kjöti ber nú glöggt með sér.
https://www.bbl.is/frettir/frettir/erum-ad-taka-rosalega-ahaettu/15246/
https://www.laeknabladid.is/tolublod/2016/02/nr/5746