Fullkomlega óábyrg stefna stjórnvalda, hjá Samtökum versunarinnar og RÚV ohf. í “kjötmálinu” svokallaða gagnvart lýðheilsunni á Íslandi og sem m.a. fellst í afnámi frystiskyldu á hráu erlendu kjöti strax í haust og sem smitað getur okkur af sýklalyfjaónæmum flórubakeríum (m.a. sýklalyfjaónæmum colibakteríum og klasakokkum) út um allt, ekki síst í verslunum landsmanna. Kjöt sem smitað getur verið í allt að 50% tilfella og lekið getur um allt og hendur okkar og barnanna í verslunum og í innkaupapokunum.
Stjórn Læknafélag Íslands ályktaði um málið á stjórnarfundi sínum 20.5.2019 og hefur sent alþingi neðangreinda umsögn sem vitnað er í hér við lagafrumvarpi stjórnarmeirihlutans um frjálsan innflutning á landbúnaðarafurðum og afnámi frystiskyldu á erlendu kjöti sem á að koma til framkvæmda strax í haust. Bændasamtök Íslands hafa ennfremur bent á að það þurfi a.m.k. 3 ára aðlögunartíma til að styrkja eftirlitskerfið svo það virki til að fyrirbyggja óheftan innflutning m.a. á sýklalyfjaónæmum flórubakteríum.
“Læknafélag Íslands (LÍ) vill af þessu tilefni benda á að innviðir og möguleikar heilbrigðiskerfisins til að bregðast við sýkingum afvöldum fjöl- og nær alónæmra baktería eru mun takmarkaðri en annarra EES landa. Skal þar sérstaklega bent á takmarkaða möguleika til einangrunarvistunar sjúklinga á meðan meðferð stendur…..
LÍ telur þvi óábyrgt að slaka á núverandi matvælalöggjöf og fiystiskyldu matvæla þar til viðunandi innviðir heilbrígðiskerfisins til að bregðast við aukinni útbreiðslu fjölónæmra baktería hafa verið styrktir.”