Það virðist dýrkeypt áramótaleikrit í gangi í fjölmiðlum vegna nauðsynlega spaslvinnu á gamla ónýta þjóðarsjúkrahúsinu á Hringbraut og sem kosta mun okkur að lokum meira en nýtt með fyrirhuguðum bútasaum. Ekkert nýtt hefur í raun komið fram í málinu varðandi núverandi ástand og myglu húsnæðisins og staðsetninguna á þröngri og gömlu Hringbrautarlóðinni í Miðbænum/Vesturbænum þekkja […]
Nú um jólahátíðina og vegna umræðu dagsins um nýjan þjóðarspítala sem stjórnvöld þykjast ekki hafa efni að að byggja upp myndalega og til langrar framtíðar, rifjast upp gamall pistill um Sólheima fyrir austan fjall og þar sem við stórfjölskyldan dvöldumst eina helgi á aðventunni fyri 9 árum. Dvöl og lífsreynsla sem ég skrifaði um stuttan […]
Í Morgunblaðinu í dag segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar að vegna fjölgunar íbúa og bifreiða stefni í að umferðin verði dauðastopp í Reykjavík eftir nokkur ár. Þess vegna verði að fá fólk til að nota almenningssamgöngur. Þetta stangast á við sjónarmið Hringbrautarsinna sem sjá engin sérstök umferðarvandamál til framtíðar. Hjálmar segir að […]
Um helgina verður haldið upp á 140 ára afmæli íslenska læknaskólans (síðar Læknadeildar Háskóla Íslands), þótt saga læknisfræðinnar og menntun læknisefna eigi sér reyndar tæprar einnar aldar eldri sögu. Í vikunni kom svo út grein um sögu bólusetninga á Íslandi hjá Landlæknisembættinu, Almennar bólusetningar barna á Íslandi – helstu áfangar í sögu bólusetninga. Þar kennir margra […]
Í vikunni féll héraðsdómur í kjötinnflutningsmálinu svokallaða þar sem EFTA reglugerðir um frjálsan ferskkjötsinnflutning til landsins eru teknar fram yfir íslensk lög og lýðheilsusjónarmið. Til lands með minnstu sýklalyfjanotkun í landbúnaði í heiminum og sem haldið hefur upp vörnum með sínum eigin gömlu reglum um innflutning, m.a. ákvæðum um lágmarksfrystingu innflutts kjöts til að lágmarka […]
Mikið hefur verið rætt um staðsetningu Nýs Landspítala og að hann verði nú aðgengilegur sem flestum, af landi sem og lofti. Um helgina átti ég lækniserindi inn í Innra-Djúp. Smellti þá af nokkrum myndum, sem og ég gerði líka í vor þegar ég fór norður í Kaldalón. Maður komst ekki hjá miklum hughrifum og að […]
Litli þrösturinn er fagur, smár og klár. Í upphafi iðnbyltingar var frændi hans, kanarífuglinn, hins vegar notaður í sérstökum tilgangi. Í kolanámunum nánar tiltekið til að meta mörk þess lífvænlega og þegar súrefnið var á þrotum. Viðkvæmastur allra og þegar hann loks dó, var tilganginum náð og menn forðuðu sér. Í dag beinast augu alþjóðar […]
Ásbjörn Jónsson verkefnastjóri hjá NLSH og Böðvar Tómasson verkfræðingur hjá Eflu og frá SPÍTAL hópnum voru til viðtals í framhaldi af viðtali við mig fyrir helgi um þyrlumálin við Nýjan Landspítala við Hringbraut, Í bítinu á Bylgjunni. Þar kom fram samkv. tölum sem þeir vitnuðu í varðandi lendingar í Fossvogi, að þær séu um 60 […]
Ég er sérstaklega gáttaður á viðhorfi flestra stjórnmálaflokka, allra nema Framsóknarflokks í dag og Pírata vonandi á morgun, fyrir því augljósasta af öllu varðandi byggingaframkvæmdir nú á Nýjum Landspítala við Hringbraut. Að vilja ekki tryggt öryggisplan B við móttöku sjúkraflutninga utan af landi, landleiðina eða með sjúkraflugi. Hvorki þarna né öðrum rökum Samtaka um betri spítala […]
Mörgum finnst örugglega óviðeigandi af mér lækninum að bera saman lífveruna manninn við dauðann hlut, þótt tæknivæddur sé. Skilningur okkar í dag á lífeðlis- og efnafræðinni og rafeðlisfræðinni leyfir okkur það engu að síður. Hvernig orkan byndst í líkamanum eftir bruna næringarefna og hverning hún er síðan losuð í orkukornum þegar hennar er þörf. Til viðhalds lífsstarfseminnar […]