Alveg er umræðan á Íslandi kostuleg og smámunarleg. Nú ætlar allt að verða vitlaust út af 400,000 kr launagreiðslum til Seðlabankastjóra á meðan algjör stöðnun ríkir í atvinnumálum landsmanna. Hér eins og svo oft áður er tímanum varið í rifrildi um smáatriði á meðan hin raunverulegu málefni fá litla umfjöllun eða afgreiðslu. Þetta eru einmitt vinnubrögðin sem leyfðu útrásarvíkingunum að haga sér eins og þeir vildu. Stóru málin eru svæfð á meðan fjölmiðlar og stjórnmálamenn halda almenningi upp á innihaldslausu snakki.
Það er nefnilega miklu auðveldara að lækka laun allra en að auka þjóðartekjur með gjaldeyrisskapandi atvinnuuppbyggingu.
Sammála, þetta er ekki stórt mál í heildarsamhengi hlutanna, en siðvæðingarbylgjan kallar á raunverulegar úrbætur. Þegar postular „gegnsæis“ kaupa seðlabankastjóra til landsins með falsloforðum, þá hlýtur að þurfa að upplýsa málið.
Hver lofaði Má að halda gamla launaumslaginu og í hvers nafni?
Skemmtileg fyrirsögn á pistlinum 😀 – og átakanlega lýsandi fyrir karpið á Klakanum.
Andri svo sammála þér ég þarf að fara lesa þína pistla reglulega. Nú þarf að fara fjölga hugsandi fólki á Íslandi. Þessi vinstri stjórn mun koma lífsgæðum Íslendinga mun neðar því miður. Jóhanna og Steingrímur eiga að segja af sér strax.
Já en þetta er samt prinsippmál!
Stórkostlegur titill á grein. Segir einn og sér allt sem segja þarf.
Nú?
Er ekki verið að rífast yfir stefnunni?
Skemmtileg fyrirsögn. En í raun og veru snýst þetta um hvort allir fái sömu meðferð á skipinu, hvort sem það er í hættu eða ekki.