Fimmtudagur 11.10.2012 - 15:23 - 5 ummæli

Samfylkingin og jafnaðarstefnan

Samfylkingin er hreyfing jafnaðarmanna á Íslandi. Því miður eru ekki allir íslenskir jafnaðarmenn félagar í Samfylkingunni, stuðningsmenn hennar eða kjósendur. En við í Samfylkingunni erum öll jafnaðarmenn, hvert með sínum hætti. Við teljum að jöfnuður í lífskjörum og jöfn tækifæri séu heilladrýgst fyrir einstaklinga og samfélag. Við teljum að hver maður skuli vera frjáls gerða sinna og hugsana svo fremi hann skerðir ekki frelsi annarra og kemur fram af heilindum. Við teljum að mennirnir beri ábyrgð hver á öðrum – játumst undir þá samábyrgð sem Frakkarnir kölluðu bræðralag á18. öld – en krefjumst þess líka af hverjum og einum að hann taki ábyrgð á sjálfum sér sé hann þess megnugur. Við þökkum frumherjum jafnaðarmanna á Íslandi fyrir að rækta þennan garð – skáldunum sem ortu kjark í alþýðu um aldamótin þarsíðustu, fólkinu sem stofnaði verkalýðshreyfingu og alþýðusamtök á fyrstu áratugum 20. aldar.

Velferðarþjónustan – Norðurlönd

Okkur finnst nánast liggja fyrir af dæmum Norðurlanda að öflug velferðarþjónusta sé burðarás þjóðarheimilis þarsem menn vinna saman jafnt að almannaheill og eigin þroska. Við teljum markaðinn þarfan þjón í atvinnulífi og viðskiptum – en afleitan húsbónda. Við viljum efla menntir og menningu, sem hafa gildi í sjálfu sér í sífelldri hollustu mannsins við hamingju sína, en gæða samfélagið líka innihaldi – og skapa störf! Við þökkum forustumönnum alþýðuflokkanna, félagsskap fólksins og framsýnum fræði- og listamönnum fyrir mikið verk í þessum efnum alla síðustu öld. Þau hafa borið árangur þrátt fyrir óhjákvæmilegar villur og mistök.

Græn jafnaðarstefna, kvenfrelsi

Sígild jafnaðarstefna mótaðist á árunum eftir iðnbyltingu, í karlveldisþjóðfélögum 19. aldar,  í andrúmslofti óbilandi tæknihyggju og framfarablætis. Nú eru aðrir tímar – og þeir jafnaðarflokkar í Evrópu hafa dregist aftur úr og trénast upp sem ekki tókst að auðga jafnaðarstefnuna með því að samþætta hana kvenfrelsi og umhverfisstefnu – jafnrétti kynjanna og jöfnuði kynslóðanna. Þetta var sá boðskapur sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir færði jafnaðarflokki okkar öðrum fremur – og við þökkum henni fyrir ásamt öðrum hetjum kvennahreyfingarinnar og mörgum einörðum baráttumönnum fyrir náttúruvernd og umhverfisviðhorfum síðustu fjóra áratugi.

Samsafnskenningin   

Það er misskilningur sem sumir halda fram, að í Samfylkingunni sé samankomið frekar tilviljunarkennt samsafn hinna og þessara pólitískra klúbba og áhugahópa þar sem sumir séu klassískir og aðrir frjálslyndir, einhverjar kvenfrelsiskellingar innanum græna öfgaliðið sem togast á við virkjunarsinna og byggðajálka. Flokkurinn endurspeglar vissulega fjölbreytileikann í íslensku samfélagi, eftir starfsstéttum, kynslóðum, menntadeildum, héruðum. Sem betur fer. En við eigum okkur öll sameiginlegan grunn – jafnaðarstefnuna.

Sjálfsmynd

Þessvegna er óþarfi að hafa miklar áhyggjur af sjálfsmynd Samfylkingarmanna eða kjölfestunni í pólitík þeirra frá degi til dags. Sjálfsagt er að leiðrétta kúrsinn eftir stórsjó og brim á siglingunni. Við skulum muna að stefna og verk samsteypustjórnar í stjórnarráðinu eða sveitarfélögunum markast auðvitað af málamiðlunum og forgangsröðun þeirra afla sem að henni standa, og af fjölmörgum fleiri þáttum. Jafnaðarstefnan – og nauðsynleg umræða í hópi jafnaðarmanna – veitir góða yfirsýn og skýra sjálfsmynd.

Formannsefni

Framundan er formannskjör. Þau sem nú hafa verið nefnd sem hugsanlegir formenn gætu hvert og eitt sinnt því starfi með prýði, og líklega verður ekki mikill málefnalegur munur á formannsefnunum. Fyrir mína parta ætla ég þó að hlusta grannt eftir þessu tvennu:

Grænar áherslur

Ég vil vita hvar þau standa í umhverfis- og náttúruverndarmálum, og hvert þau vilja stefna í atvinnumálum. Nú eru að verða straumhvörf. Eðlilegt er að segja skilið við fortíðardrauma um stóriðjuuppbyggingu í sovéskum stíl, með öllum sínum umhverfisfórnum, og byggja markvisst upp grænt hagkerfi. Upp úr hruninu erum við að komast með hjálp náttúrugæða af landi og hafi, en því má ekki gleyma að verulegur hluti af verðmætasköpun dagsins sprettur af okkar eigin hyggjuviti. Hugverkageirinn er ört vaxandi hluti atvinnulífsins og forsvarsmenn hans hafa bent stjórnvöldum á að nokkur helstu fyrirtæki hans þurfi tæknimenntað fólk þúsundum saman á næstu árum.

Samstarfskostir

Samfylkingin, flokkur jafnaðarmanna, er stofnuð til að vera höfuðafl í íslenskum stjórnmálum. Hún er mið-vinstriflokkur, og á að bjóða til samstarfs öðrum flokkum og hreyfingum til vinstri og fyrir miðju, fólki sem leggur áherslu á jöfnuð og frjálslyndi hvað sem líður afstöðu þess í einstökum átakamálum. Stjórn með hægrimönnum er ekki eðlilegur kostur fyrir Samfylkinguna, enda hafa slíkar tilraunir gefist illa. Samstarf við hægriflokka tel ég því aðeins koma til greina að um sé að ræða mikilvæga þjóðarhagsmuni, svo sem inngöngu í Evrópusambandið, eða þá brýnar umbætur innanlands sem ekki yrði komið á með öðrum hætti.

Önnur spurningin er um samfélagsstrategíu, hin um pólitíska taktík. Báðar mikilvægar.

 

Einnig birt sem grein í Fréttablaðinu í dag, fimmtudaginn 11. október.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Albert Sveinsson

    Sæll þessi lýsing á vel við jafnaðarmannastefnuna sem maður þekkir á norðurlöndunum fyrir utan Ísland þar hafa þingmenn selt fjölskyldur landsins til fjármálageirans og þessi skjaldborg var ekki fyrir heimillin heldur fjármálaelítuna. Ekki minnir mig að þú hafir barist fyrir leiðréttingu lána né afnám verðtryggingunar sem er að gera út af millistéttarfólki á síðasta kjörtímabil heldur var það fólkið sjálft með lögin að vopni sem unnu stærstu sigrana. Ég vona það sannarlega að í næstu kostningum komi inn fólk sem þorir og berjist fyrir fjölskyldur í landinu allt kjörtímabilið en ekki bara korter fyrir kostningar.

  • Jóhann Grétar Kröyer Gizurarson

    Ágætis pistill, en það er kominn kosningalykt af honum 🙂

  • Þorleifur H. Gunnarss.

    Það hafa færri og færri orðið áhuga á Samfylkingunni hér á landi.

    Nú er Róbert Marshall kominn til dótturflokks Samfylkingarinna, sem gengur undir vinnuheitinu „Björt Framtíð“.

    Þetta er bara pólitísk leikflétta og hönnuð atburðarrás a la Samfylkingin.

    Þarna á að styrkja Bjarta Framtíð svo að hún nái mönnum á þing og geti þannig gengið til liðs við núverandi stjórnarmeirihluta svo að hann starfi áfram eftir kosningar.

    Það sjá allir í gegnum þetta. Enginn virtist vera hissa og miður sín innan Samfylkingarinnar vegna þessa brotthvarfs Róberts.

    Ekkert uppnám, engin ótti, engin særindi, ekkert að óttast, Róbert segir að hann styðji stjórnina áfram, því hann var bara að skipta um skoðun, (líkt og fólk skiptir um föt), að allt annað er óbreytt, þ.e. stefnan og stuðningur í við stjórnina.

    Sem sagt allt í plati og kemur fram á sama tíma og skýrsla um Orkuveituna, sem Samfylkingin stjórnaði lengst. Allt gert til að beina athyglinni frá þessari skýrslu.

  • Hreiðar Eðvarðsson

    \“Við teljum að hver maður skuli vera frjáls gerða sinna og hugsana svo fremi hann skerðir ekki frelsi annarra og kemur fram af heilindum. Við teljum að mennirnir beri ábyrgð hver á öðrum \“

    Er þetta ekki hrópandi þversögn?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og þremur? Svar:

Höfundur

Mörður Árnason
sjálfstætt-starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður. Netfang: mordurarna@gmail.com. Vinir velkomnir á Fb.:
www.facebook.com/mordurarna.
RSS straumur: RSS straumur