Miðvikudagur 31.10.2012 - 08:01 - Rita ummæli

Sátt um leikreglur

Við höfum nú deilt um stóriðju, náttúruvernd og umhverfisspjöll í rúma fjóra áratugi í síðari hálfleik – miðað við að hinn fyrri hafi byrjað uppúr aldamótum með Milljónafélögunum og Sigríði í Brattholti.

Það er sannarlega kominn tími til að komast fram úr þessum illvígu deilum, ekki síst vegna þess að virkjanlegt vatnsafl og jarðvarmi er takmörkuð auðlind. Niðurstöður verkefnahóps um rammaáætlun sýna að aðeins er eftir að virkja um 2 og hálfa Kárahnjúkavirkjun þegar allt er talið. Við megum ekki spilla náttúrugæðum í fljótfærni – vegna þess að þau eru verðmæti í sjálfu sér, og vegna þess að þau eru grundvöllur annarra atvinnugreina en stóriðju. Við verðum líka að fá gott verð fyrir orkuna á 21. öld. Tímar kynningarbæklingsins „Cheapest Energy Prices“ eru liðnir.

Merkilegt mál með langt nafn – rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða – er nú til umræðu og afgreiðslu á alþingi. Með samþykkt fyrstu ályktunarinnar um þetta verða straumhvörf í þessum viðkvæmu deilumálum. Landsvæðum þar sem hugsanlegt er að virkja verður skipt í þrjá flokka. Sum fara í verndarflokk sem merkir að það land verður helgað öðru en orkunýtingu, svo sem til útivist og ferðamennsku. Önnur fara í orkunýtingarflokk, sem merkir að engin sérstök hindrun er í vegi fyrir virkjunarrannsóknum, leyfisumsóknum, umhverfismatsgerð o.s.frv. Enn önnur fara í biðflokk, þau sem ekki hafa verið rannsökuð nægilega eða menn vilja hinkra með að ákveða vegna „almannahagsmuna“ einsog segir í áliti frá iðnaðarnefnd þingsins vorið 2011.

Margir hafa að vonum fagnað rammaáætluninni sem merki nýrrar sáttar. Tímar umræðu og átaka um einstakar virkjanir eða náttúrusvæði eru hinsvegar ekki liðnir.

Slíkur ágreiningur verður ekki leystur með lögum og þingsályktunum, allra síst fyrirfram. Sú sátt sem næst með rammaáætlunarskipulaginu ef vel gengur er umfram allt sátt um leikreglur. Samkomulag um að taka ákvarðanir um dýrmæt náttúrugæði í ljósi allra bestu upplýsinga og með fulla yfirsýn um afleiðingarnar, bæði á staðnum sjálfum og úti um allt land.

 Hávaði um biðtillögu

Í tillögunni sem nú liggur fyrir eru ein 67 landsvæði undir. Gert er ráð fyrir að 20 þeirra verði undanskilin orkunýtingu og vernduð með einhverjum hætti. Þetta eru merkileg svæði og fyrirhuguð verndun markar mikinn áfanga í sögu okkar með landinu: Þjórsárver tryggð, Torfajökulssvæðið, Gjástykki, Brennisteinsalda, Grendalur, Jökulsá á Fjöllum, Kerlingarfjöll … Áfram verða 16 kostir opnir fyrir virkjunarathugunum og -framkvæmdum, en í bið fer 31 landsvæði þar til allar upplýsingar liggja fyrir.

Frá stjórnarandstöðuflokkunum hefur verið mikill hávaði kringum þessa tillögu en í raun virðist helst deilt á samtals 6 virkjunarkosti af 67, á tveimur svæðum, í Þjórsá neðanverðri og á hálendinu austan Vatnajökuls, sem ætlunin er að fari í biðflokkinn meðan aflað er frekari upplýsinga. Fulltrúar gömlu sovésku stóriðjustefnunnar í Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki fullyrða að vondir pólitíkusar hafi sett puttana í faglega niðurstöðu, og hóta að snúa öllu við ef þeir komist í ríkisstjórn. Þó hefur það eitt gerst frá tillögu fagmannanna að þessi nokkru kostir voru settir í biðflokk. Viðsnúningurinn hjá þeim getur þá varla falist í öðru en að fjölga enn í biðflokknum.

Ég hef verið tilnefndur framsögumaður þessa máls í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins, og er ánægður með ábyrgð og traust sem í því felst. Þetta er eitt allra mikilvægasta þingmál kjörtímabilsins, og við verðum að vanda okkur við það – en sómi okkar liggur líka við að afgreiða áætlunin og koma á þeim nýju siðlegu vinnubrögðum í umgengni við landið okkar sem í henni felst. Við það verk þurfum við ekki síst að muna að við sem nú erum á dögum eigum ekki Ísland – heldur fengum það að láni frá foreldrum okkar, til að afhenda það börnum okkar, þannig að staðfærð séu fleyg orð sunnan frá Afríku um mannkynið og jörðina.

 

 Birtist líka í Fréttablaðinu 31. október

Flokkar: Óflokkað

«
»

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og átta? Svar:

Höfundur

Mörður Árnason
sjálfstætt-starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður. Netfang: mordurarna@gmail.com. Vinir velkomnir á Fb.:
www.facebook.com/mordurarna.
RSS straumur: RSS straumur