Föstudagur 16.11.2012 - 11:54 - 1 ummæli

Reykjavík kæra Reykjavík

Öll pólitík er staðbundin, segja spekingarnir – og þannig á það líka að vera.

Almannahagur þarf að hafa miklu meira að segja en nú er vaninn við ákvarðanir um skipulag og framkvæmdir í hverfum og kjörnum þar sem byggðin er gömul eða merkileg af öðrum ástæðum, þar sem svæðið sjálft og sögu þess má telja mikilvæga sameign allra íbúa í sveitarfélaginu og í sumum tilvikum allra landsmanna. Með því að gefa þessum svæðum – sögulegri byggð – sérstöðu í lögum er hægt að styrkja almannarétt og auka svigrúm sveitarstjórnarmanna við að vernda sérkenni og andrúmsloft þessara svæða. Ágæt dæmi um slík svæði eru Kvosin og Laugavegurinn í Reykjavík – en þau eru miklu fleiri, í höfuðborgarhéraðinu og í bæjum og byggðarkjörnum um allt land.

Þetta er kjarninn í frumvarpi sem ég hef lagt fram á alþingi ásamt sjö öðrum þingmönnum í þeirri þingnefnd sem fjallar um skipulagsmál. Þar er lagt til að sveitarstjórnir geti skilgreint svæði sem sögulega byggð í skipulaginu, og um slík svæði gildi síðan sú regla að fasteignareigandi á því aðeins rétt á skaðabótum vegna breytinga á skipulagi að hann hafi fengið byggingarleyfi fyrir tiltekinni framkvæmd, sem ekki passar við nýja skipulagið.

Kveikja frumvarpsins eru umræðurnar í sumar um hugmyndasamkeppnina kringum Ingólfstorg í Reykjavík. Þar eru borgarfulltrúar og borgarbúar í þeirri klemmu að peningamaður hefur keypt fjölmörg hús og lóðir. Viðhorf til þessa reits – sem er hluti af allra elstu byggð í Reykjavík – hafa breyst mjög frá því misvitrir ráðamenn í borginni samþykktu deiliskipulag fyrir Kvosina árið 1986, fyrir rúmum aldarfjórðungi. En það skipulag stendur vegna ákvæða í lögum, og sumir lögfræðingar halda að það gefi eigendum fasteigna á svæðinu rétt til að rukka himinháar fjárhæðir fyrir allar breytingar sem skerða villtustu drauma um framkvæmdir – þótt engar séu hafnar. Aðrir telja reyndar að dómar sem fallið hafa í málum af þessu tagi séu ekki óyggjandi.

Staðirnir sem tengja okkur

Ég hef svo sannarlega ekkert á móti peningum og peningamönnum í gömlum hverfum – því fé er afl þeirra verka sem fram skal koma, sagði gamli Cicero fyrstur manna. Engin ástæða er til að amast þar við eðlilegum breytingum, annarskonar nýtingu, verslun og viðskiptum, enda eru mörg þessara hverfa einmitt til orðin utan um ýmiskonar athafna- og viðskiptalíf. En þau eru ekki Matador-spjald þar sem gróðavonin ein á að ríkja.

Þessi hverfi – söguleg byggð – hafa alveg sérstakt gildi, fyrir íbúa og starfsmenn, fólkið allt í borginni eða bænum, og oft alla Íslendinga. Þetta eru svæðin þar sem fjölskyldurnar koma á hvíldardögum, sem ferðamenn sækja í, kjarnarnir þar sem við viljum koma saman á mannamót, fagna áföngum eða minnast liðinna stunda. Staðirnir sem tengja okkur og sameina okkur.

Við erum nýrisin á fætur eftir hrunið og verkefnin framundan eru sannarlega fjölmörg. Við megum samt ekki gleyma að byggja Nýja-Ísland með góðum gömlum gildum – virðingu fyrir liðnum kynslóðum og tilliti til manneskjunnar í okkar öllum. Að ekki sé minnst á þarfir ferðaþjónustu, rannsóknarstarfs og þekkingarfyrirtækja.

Um leið og ég minni á fund Torfusamtakanna á mánudaginn um skipulag og skaðabætur, á Sólon kl. 20, býð ég lesendum til göngu niður Laugaveginn á morgun, laugardag – síðari prófkjörsdag Samfylkingarinnar í Reykjavík. Með okkur gengur Guðjón Friðriksson sagnfræðingur Reykvíkinga. Byrjum á Hlemmi klukkan 11, og skoðum götu sem hefur tengt okkur í hálfa aðra öld.

 

(Líka birt í Fréttatímanum)

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (1)

  • Garðar Garðarsson

    Góð og þörf þingsályktunartillaga um skipulagsmál sem Mörður kynnir hér.

    Þó þessi tillaga komi of seint fram vegna þeirrar stórkarlalegu hótelbyggingar sem troða á í hjarta Kvosarinnar við Austurvöll, Ingólfstorg og Víkurgarð, þá vona ég innilega að þessi tillaga Marðar og fleiri verði til þess að hreyfa við borgarfulltrúum Reykvíkinga svo þeir leiti allra leiða til þess að forða þarna menningarlegu slysi.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og tveimur? Svar:

Höfundur

Mörður Árnason
sjálfstætt-starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður. Netfang: mordurarna@gmail.com. Vinir velkomnir á Fb.:
www.facebook.com/mordurarna.
RSS straumur: RSS straumur