Í ljósi síðustu frétta um sameiningu heilsugæslustöðva og áframhaldandi niðurskurð þjónustunnar við höfuðborgarbúa koma fréttir nú á óvart. Borgarstjórn hefur samþykkt tillögu borgarfulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar um að óska eftir formlegum viðræðum við ríkisvaldið um framtíðarfyrirkomulag heilsugæslunnar í Reykjavík. Markmiðið með viðræðunum er að Reykjavíkurborg taki við heilsugæslunni eins og segir á fréttavef RÚV. Spurning er hvort borgin vilji nú verja þjónustuna sem ríkið vill skera niður. Hingað til hefur lítið verið hlustað á óskir fagfólks. Heilsugæslustöðvarnar tvær í Hanfarfirði voru færðar nauðugar undir stjórnunarvænginn í Reykjavík fyrir 5 árum síðan. Starfsfólkið mótmælti kröftuglega þá og harmaði að gengið skyldi á nærþjónustuna, sjálfstæði og frumkvöðlastarf stöðvanna. Nokkrum árum áður hafði málefni heilsugæslustöðvanna færst úr hendi sveitastjórnanna til ríkisins að ósk sveitafélganna sjálfra þar sem þeim óx kostnaðurinn í augum. Nú er spurningin, hefur Reykjavíkurborg og nágranasveitafélögin efni á að reka heilsugæsluna án þess að skera niður þjónustuna?