Athyglisverð grein er nú birt á vefsíðu tímarits bandaríska læknablaðsins, The Journal of Pediatrics og sem segir frá rannsókn á hegðunartruflunum um þrjúþúsund 5 ára gamalla barna tengt gosdrykkjarneyslu þeirra. Áður hafa menn fundið tengsl aukinnar sykurneyslu barna og ákveðinna ofvirknieinkenna, ekki síst hjá börnum með athyglisbrest, svokölluð sykuróþekkt. Eins sýna fyrri rannsóknir sem áður hefur verið fjallað um hér á blogginu tengsl sykur- og orkudrykkja við hegðunarvandamál og ofbeldi unglinga. Rannsóknin núna sýnir bein tengsl hegðunarerfiðleika ungra barna eftir magni gosdrykkja sem þau neyta yfir daginn. Tilbúinn vandi í nútímaþjóðfélaginu og sem tengist neysluvenjum okkar almennt, ekki síst fullorðna fólksins. Einnig er rétt að geta hér um pistil á Bleikt.is um áhrif matravenja verðandi mæðra á hegðun barna þeirra síðar og eins tengda umræðu í fyrri pistli mínum um hina ósýnilegu glugga heilsunnar.
Engin heilsuvandamál eru jafn alvarleg í heilbrigðiskerfinu í dag og sem tengjast ofþyngd og sykursýki, þar sem mikil neysla gosdrykkja á stærstu sökina og sem fjallað hefur verið um oft áður hér á blogginu og víðar. Neysla sykurs, sérstaklega fruktósu sem frumur líkamans ráða illa við og var aldrei honum ætlað fyrr en á síðustu árum og eykst stöðugt. Þeim mun alvarlegri er sykurneysla barna í íslensku þjóðfélagi og sem er mun meiri en á hinum Norðurlöndunum, sérstaklega drykkja gos- og annarra orkudrykkja. Stærsta óvininum varðandi líka heilsu okkar flestra.
http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP20618
http://www.jpeds.com/webfiles/images/journals/ympd/JPEDSSuglia.pdf
http://bleikt.pressan.is/lesa/af-hverju-er-sykur-ohollur-blakaldur-sannleikurinn/
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2012/08/27/hvita-efnid-sem-drepur/
http://bleikt.pressan.is/lesa/matarraedi-kvenna-a-medgongu-hefur-ahrif-a-hlydni-barna-theirra/
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2012/03/14/hjartaafoll-og-gosdrykkja-karla/
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2012/04/20/hin-illkleifu-fjoll-nordursins/
http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2013/02/09/athyglin-brestur-og-arekstrar/