Miðvikudagur 12.02.2014 - 13:44 - FB ummæli ()

8 milljón svefnlyfjaskammtar svo þjóðin dormi!

 

Milli 5-10% af fjölda skilgreindra dagskammta lyfja sem landinn tekur að staðaldri (börn þar meðtalin) eru svefnlyf, auk þess sem rúmlega 30% Íslendinga nota tauga- og geðlyf á hverju ári, þar sem þunglyndislyfin vega þyngst. Algengast lyfið sem skrifað er út á Íslandi er svefnlyfið Imovane og sem samsvarar eitt og sér yfir 5 milljón skömmtum (DDD) á ári, en alls munu um 8 milljón „kvöldskammtar“ af svefnlyfjum vera skrifaðir út á ári hverju hér á landi, mest í rafrænu endurnýjunarformi.

Margir fá svefnlyf af þörfu tilefni í fyrsta sinn, en sennilega fleiri oftar af óþörfu síðar og sem valdið getur skaða og sljórri hugsun. Flest svefnlyf lengja auk þess ekki hinn raunverulega svefn sem nokkru nemur (ca. 30 mín) auk þess sem þau skerða oft svefngæðin seinni part nætur. Íslendingar nota fjórfalt meira af svefnlyfjum en frændur okkar Danir sem hafa þó þegar miklar áhyggjur af sinni notkun og sem endurtekið hefur verið t.d. til umfjöllunar ásamt annarri lyfjanotkun í danska ríkissjónvarpinu dr.dk (Danmark på piller).

Tólfti hver Dani notar þunglyndislyf á hverjum tíma, en hingað til hefur verið áætlað að 10-20% einstaklinga eigi við tímabundið þunglyndi að stríða í hinum vestræna heimi, einhvern tímann á lífsleiðinni. Tíuprósent þjóðar eins og lyfjanotkun Dana bendir til, leiðir hugann að ofnotkun þessara úrræða. Notkun þunglyndislyfja hefur aukist mest meðal unga fólksins eða um helming. Umræðan í dag litast því líka af vaxandi álagi í þjóðfélaginu og skorts á öðrum úrræðum, sálgæslu og ráðgjöf við kvíða og þunglyndi. Í málum sem við stöndum síst betur að vígi hér á landi og fram kom í síðasta pistli.

Áætlað er að svefn- og verkjalyf séu farin að valda fleiri umferðarslysum í Bandaríkjunum og Bretlandi en alkóhól eitt og sér. Ef Íslendingar færu að miða við samsvarandi slævandi áhrif og ólögleg gildi alkóhóls í blóði er til aksturshæfnis og sem Norðmenn miða við, >0.2 prómill, að þá eru sennilega ansi margir ökumenn ólöglegir á götunum okkar í dag. Að minnsta kosti fram eftir degi og alla daga ef stærri skammtar eru notaðir. Mál sem rétt er að horfa til þótt ekki væri nema varðandi umferðaröryggi almennt. Norðmenn eru því farnir að mæla gildi svefnlyfja í blóði, samfara mælingum á alkóhóli í blóði ökumanna sem stoppaðir eru í umferðareftirliti. Eins er til mikils að vinna þegar horft er til skertrar vinnugetu á öllum sviðum, sem og depurðar og kvíða sem af svefnlyfjanotkun getur leitt.

Mikil svefnlyfjanotkun landans er alvarlegt heilbrigðisvandamál og sem Íslendingar þurfa að fara hugsa um hvernig eigi að bregðast við. Ætla má, að allt að 10% fullorðinna noti svefnlyf að staðaldri og miklu fleiri tímabundið. Hvað lyfjaendurnýjanir almennt varðar, eru ávísanir á svefnlyf algengastar allra endurnýjunna í heilsugæslunni. Vöntun á tímum til ráðgjafar varðandi svefnvandamál, eins og önnur geðræn einkenni, má eflaust kenna um að mestu leiti. Svefnlyf verða hins vegar fljótt hækja sem fólk er hrætt eða viljalaust til að sleppa og því mikil ásókn í lyfjaendurnýjun. Mörg önnur úrræði eru hins vegar til gegn svefntruflunum og sem ég hef áður skirfað um.

Lyfjamál þjóðarinnar þurfa reyndar stöðugt að vera í endurskoðun. Eins verkferlar í heilbrigðiskerfinu og ávísanavenjur lækna. Löngu er vitað að vöntun á eðlilegri heilbrigðisþjónustu tengist fleiri skyndiúrlausnum og óþarfa notkun lyfja, þar sem við erum jafnvel heimsmeistarar. Sjaldan hefur verið jafnmikið tilefni til átaks og nýrra forgangsröðunar í heilbrigðismálum í þessu sambandi og nú, og allur þessi fjöldi “kvöldskammta” til þjóðarinnar sýnir. Aðgengið skerðist hins vegar stöðugt meir og meir að heilsugæsluþjónustunni hér á höfuðborgarsvæðinu og þeirri litlu sálfræðiþjónustu sem þar er að finna, en bætt getur sannarlega hugræna getu og félagslega færni til lengri tíma. Eins að við séum frekar vel vakandi, en fljótum um hálfsofandi …..

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2013/03/25/ologleg-svefnlyfjanotkun-islendinga/

http://eyjan.pressan.is/frettir/2011/11/08/thridji-hver-einstaklingur-i-landinu-a-tauga-eda-gedlyfjum-laeknir-varar-vid-skyndilausnum/

http://www.ruv.is/frett/hafa-aldrei-notad-meiri-svefnlyf/

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2011/11/07/svefnvandi-islendinga/

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2011/11/03/svefnleysi-og-offita-thjodarinnar/

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2014/01/09/klukkan-goda-i-prag/

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2010/08/17/lyfjakostnadur-afram-har/

http://www.visir.is/thrir-og-halfur-milljardur-i-gedlyf-a-hverju-ari/article/2014140219543

(endurritað upp úr eldri grein á Eyjunni, „Vakna þú nú þjóð mín“ og grein í DV “Kvöldskammtar þjóðarinnar“ sl. haust)

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn