Náttúran á Ströndum lætur ekki að sér hæða og sem leiðir hugan að mannanna verkum og stærstu byggingaframkvæmdunum. Á m.a. þjóðargjöfinni stærstu, sjálfu nýju þjóðarsjúkrahúsi en þar sem vinstri höndin virðist ekki vita hvað sú hægri gerir. Óháð stað og sund og síðustu pistlar mínir greina frá. Allt þar nú þegar komið í stóran rembihnút, en sem engu að síður telst minn framtíðarvinnustaður ef mér endist aldur.
Á leið minni til Norðurfjarðar frá Hólmavík í lækniserindum í vetur tók ég nokkrar myndir. Af stórum gimsteinum íslenskrar stórhuga náttúru og sem ræður sér sjálf, ólíkt oft þjóðarviljanum í sínum mikilvægustu málum! Heppinn var ég að fá að hvíla hugan og getað séð hlutina í allt öðru ljósi. Líka þegar læknar fagna 100 ára afmæli Læknafélag Íslands í mesta þéttbýlinu.





Vilhjálmur Ari Arason