Miðvikudagur 08.01.2020 - 14:16 - FB ummæli ()

Svikin loforð í spítalamálum aldraðra og bráðaþjónustumálum LSH

Þjóðviljinn 22.10.1982

 

Svona átti að stækka bráðamóttökuna eftir að fyrsta áfanga lauk á G álmunni 1980 – núverandi húsnæði BMT LSH og sem tók aðeins 2 ára að byggja (Stálgrindarhús).
Ekkert varð af framkvæmdum og ríkið tók við rekstri Borgarspítalann stuttu síðar (1986). Álagið á BMT tugfaldast og mikill vaxandi fráflæðisvandi vegna aldraða sem þurfa að komast á aðrar deildir spítalans.

B álman var hins vegar reist 1982 og sem var LOFAÐ öldrunarþjónustu eingöngu í upphafi (sjá meðfylgjandi frétt á mynd í Þjóðviljanum 1982), en sem síðar var ákveðið að taka undir blandaða starfsemi ásamt einn öldrunardeild.

Í dag er mest aðkallandi að byggja greiningardeild, 60-80 skammtíma-sjúkradeild fyrir sjúklinga sem bíða innlagnar á aðrar deildir eða sem stutttíma legu/meðferðardeild, svipað og A2 gerir í dag (10 rúma deild og sem er alltaf yfirfull). Deild sem öldruðum myndi gagnast vel í bráðameðferð og meðan unnið er að frekari úrræðum, flutningi á aðrar sjúkra- og meðferðardeildir spítalans, á öldrunarstofnanir/endurhæfingadeildir/í varanleg vistunarrými eða heim..

Slíka greininga/biðdeild hefði í raun fyrir löngu átt að vera búið að byggja og margoft verið bent á sl. áratug, tengt miklum almennum skorti á öldrunarvistunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu sérstaklega. Nú líka miklum fráflæðisvanda sem veldur Bráðamóttöunni sjálfri miklum starfserfiðleikum.

Framhald af G álmu t.d. eins og alltaf stóð til fyrir 40 árum, stálgrindarhús- ódýrt hús- og sem þyrfti ekki að taka nema árið að klára og ef vilji væri fyrir hendi. Nýi spítalinn á Hringbraut “nú” kemst heldur ekki í gagnið fyrr en í fyrsta lagi eftir áratug. Landlæknir hefur m.a. bent á í sinni rótargreingu sl. ár að ein meginástæða fráflæðisvanda BMT vera hlutalokanir á almennum deildum spítalans.

Eins er löngu ljóst að gamli góði Borgarspítalinn verður áfram rekinn í Fossvogi eftir að meðferðarkjarni rís á Hringbraut enda allt of lítill miðað við þarfir og þótt upphafleg forsenda framkvæmda þar hafi alltaf verið einn stór spítali á einum stað!!!!!

Eins ríkir mikil óvissa um bráðaaðgengi að nýjum meðferðarkjarna á Hringbraut og eins víst að sjúkraþyrluflugi t.d. verði áfram um langa framtíð best tryggður aðgangur í Fossvogi og þá bráðasjúkrahúsin hvort sem áfram tvö!!!

Segja má a.m.k. að ríkið hafi svikið flest loforð um hlutverk Borgarspítalans eftir yfirtöku frá borginni 1986 og sem byrjaði sína starfsemi svo myndarlega 1967. Mikil skömm af þessu öllu saman.

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn