Enn sem komið er hefur enginn í Strandasýslu greinst með Covid19. Sennilega má þakka það tilviljun, en íbúar og heilbrigðisstarfsfólk hafa frá byrjun verið vel vakandi fyrir smithættunni. Allt í kring hafa komið upp hópsýkingar, aðallega í fyrstu bylgju faraldursins í apríl.
Að sama skapi má áætla að hjarðónæmið fyrir Covid19 sé lítið sem ekkert og þannig næmið mjög mikið í samfélaginu í vetur. Mögulegt er auðvitað að einhverjir séu með mótefni og hafi fengið einkennalausa sýkingu, án þess að veikjast fyrir sunnan.
Hætt er við að næm samfélög eins og Strandirnar geti fengið yfir sig holskeflu Covid19 faraldursins, ef ekki er varlega farið. Spurningar hafa svo sem verið frá byrjun að loka eigi fyrir ónauðsynlegar samgöngur á Strandir í þessum tilgangi. Hvergi á landinu er meðalaldur hærri. Heilbrigðisþjónustan miðast við lítið sjúkrahús og heilsugæslustöð á Hólmavík. Einn læknir og enginn hjúkrunarfræðingur flesta daga. Einn sjúkrabíll og hérað sem spannar meira en 100 km, norður, suður Strandir og allt innra Djúp. https://blog.dv.is/vilhjalmurari/2016/11/01/thjodbrautin-um-innra-djup-og-strandir/