Fyrst kynin eru tvö, karl og kona, hljóta þau að eiga bæta hvort annað upp. Hlutverkaskiptingin hefur bara ekki alltaf verið á hreinu. En eitt er alveg ljóst að hvorugt kynið getur án hins verið. Holl eru kvennaráð og það er betra að hafa ykkur með en á móti. Konur axla að öllum jafnaði miklu […]
Ég ætlaði upphaflega að blogga einhver góð hvatningarorð til kvenna í tilefni að deginum í dag en varð „kjaftstopp“ eftir að hafa heyrt úr predikun biskups, Hr. Karls Sigurbjörnssonar í gær og eftir að hafa séð viðtal við hann í fréttum á Stöð 2. Er maðurinn veruleikafyrtur eða er ég svona blindur að sjá ekki ljósið. Hver er í […]
Mikið er rætt um veikburða ríkisstofnanir þessa daganna. Þær eiga undir högg að sækja enda hefur stjórnunin ekki alltaf verið eins og best verður á kosið og oft vaknað upp spurningar hvaða hagsmuni er verið að verja. Þróun opinberrar þjónustu hefur liðið fyrir vöntun á forgangsröðun en sjónarmið vina og stjórnmálamanna látin ráða í stað bestu fagþekkingar á […]
Öll mál eiga sér tvær hliðar. Sérstaklega gildir þetta þegar við deilum hvort við annað. Oft komumst við að einhverri niðurstöðu. Stundum höfum við haft rangt fyrir okkur en erum þá reynslunni ríkari á eftir. Stundum vitum við betur en látum í minni pokann. Allt of oft bökum við samt vandræði eða látum gabba okkur. Ég […]
Við vitum flest að jólasveinninn eins og við þekkjum hann er ekki til og að ímyndinn er kaþólskari en sjálfur páfinn. Íslenski jólasveininn er ekki eins helgur enda fábrotnari og treystir minna á skrautið og brosið. En hvað skyldi liggja þarna að baki og við skulum ekki láta glepjast af góðlátlegu yfirbragðinu. Í dag er jólasveinninn fyrst […]
Nýlega var ég á ferðalagi í Bandaríkjunum. Á langri flugferð með ókunnugu fólki verður maður oft hugsi um nútíðina og hvað augnablikið getur verið afstætt. Til dæmis að líf manns skuli geta verið komið undir góðum flugstjóra og góðri flugvél. Maður verður samt að vera svolítið kærulaus og ef eitthvað gerist að þá tekur þetta […]
Það er vægt til orða tekið þegar maður segir að það séu blikur á lofti með sama aðgang að heilbrigðisþjónustu hér á landi í náinni framtíð eins og við þekkjum hana í dag. Ógnvænlegur niðurskurður er þegar orðinn og afleiðingarnar er að mörgu leiti duldar. Það sem almenningur sér eða fær að vita er aðeins toppurinn […]
Oft gleymum við því að við getum sýnt fyrirhyggju í lífinu og gert varúðarráðstafanir til að forðast skakkaföll. Margir bíta samt bara í skjaldarrendurnar og bjóða framtíðinni birginn eins og sönnum víkingum sæmir. Þetta þekkjum við Íslendingar vel sem og afleiðingarnar. Nú er byrjað að bólusetja gegn árlegri Inflúensu á flestum heilsugæslustöðvum og stærri vinnustöðum sem talin […]
Nú er eitt ár síðan ég byrjaði að blogga á Eyjunni. Ég þakka Eyjunni fyrir að vera vera til og gefa mér þetta tækifæri. Það er gott að getað tjáð sig um þjóðfélagsmálin, ekki síst heilbrigðismál á tímum þegar verulega er skorið niður í velferðarsamfélaginu. Þvílík rússíbanareið enda stórtíðindi á hverjum degi og af mörgu að taka. […]
Oft er það sjálfsagðasta í heimi sem fer forgörðum, ekki síst hjá okkur Íslendingum sem þrátt fyrri allt telst með betur stæðari þjóðum heims á alla almenna mælikvarða. Helstu heilsuógnirnar eru einmitt okkur sjálfum að kenna. Hjá ung- og leikskólabörnum er það meðal annars afleiðingar ofnotkunar sýklalyfja, nánar tiltekið alvarlegt sýklalyfjaónæmi helstu sýkingavalda og óþarflega […]