Ögmundur segir ekki orð um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, hann er núna í sínu uppáhaldshlutverki, kemur hlaðinn loforðum og lausnum. Eina sem skyggir á hjá Ögmundi er flokksbróðir hans Björn Valur sem varar við of miklum væntingum. Ögmundur slær nú létt á þær áhyggjur og segir: „… að ekki megi einblína um of á kostnað heldur […]
Forgangsröðun forsætisráðherra er skýr, peningar og skuldir koma ofar heilsu og heilbrigði. Stærsta mál ríkisstjórnarinnar er að finna 200 ma kr. handa skuldsettum heimilum á sama tíma og gengdarlaus niðurskurður á sér stað í heilbrigðisþjónustu og þúsundir manna þurfa að þiggja matargjafir til að geta fætt börn sín. Talað er um þjóðarsátt um skuldir heimilanna, […]
Tveimur árum eftir bankahrunið stefnir í hrun heilbrigðisþjónustunnar á landsbyggðinni. Reynsla annarra þjóða sýnir að heilbrigðisstofnanir þola ekki 20% niðurskurð, þjónustan einfaldlega hrynur. Það er engin tilviljun að Bretar ætla ekki að skera niður í heilbrigðisþjónustu hjá sér í þessari kreppu, allt annað verður skorið niður meira. Þeir vita af bitri reynslu að flatur niðurskurður […]
Þá hefur Bjarni Ben bæst í hóp allra annarra stjórnmálaleiðtoga sem kenna bönkunum um skuldavanda heimilanna. Það er mjög athyglisvert að allir flokkar frá Sjálfstæðisflokki til Hreyfingarinnar skella skuldinni á bankana en tala varla um lífeyrissjóðina eða Íbúðarlánasjóð? Hvers vegna? Hvar liggur stærsti hluti húsnæðislána landsmanna? Bankarnir fengu sína lán á afslætti en ekki Íbúðarlánasjóður […]
Að bjarga heimilunum kostar kr. 200-220 ma en að skera niður heilbrigðisþjónustu um 20% á landsbyggðinni eins og fjárlög boða, sparar aðeins tæpa kr. 3 ma. Ef það er hægt að finna peninga til að bjarga heimilunum þá hlýtur að vera lítill vandi að bjarga heilbrigðisþjónustunni úti á landi, ekki satt? Vandamálið í þessum reikningi […]
Hver stjórnar Íslandi? Þetta er spurning sem erlendir aðilar velta fyrir sér. Sérstaklega er þetta umhugsunarvert fyrir starfsmenn AGS í Washington. Ansi er ég hræddur um að starfsmenn þar hafi verið of fljótir á sér að klappa á bakið á Steingrími og gefa yfirlýsingar um 3% hagvöxt hér á landi 2011. Icesave vandamálið er aðeins […]
Sú staðreynd að þúsundir manna þurfi að standa í biðröð til að þiggja matargjafir er einhver mesti áfellisdómur á íslensk stjórnvöld sem hugsast getur og sýnir hversu langt Ísland er komið af braut norræna velferðarkerfisins. Ekki einu sinni í Bandaríkjunum þarf fólk að leggjast svona lágt. Þar í landi úthlutar hið opinbera öllum sem eiga […]
Nú eru tvö ár liðin frá hruni og enn er verið að ræða hugmyndir um skuldaaðlögun fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Ekki vantar tillögur og aðgerðir en íslensk pólitík og þrjóska á sér fáa líka. Það er deginum ljósara að á Íslandi er ekki til sú þekking, reynsla og kunnátta sem þarf til að leysa vandamál […]
Það er ekki bæði haldið og sleppt þegar kemur að uppboðsmálum. Innanlands er gefið í skyn að þetta sé bönkunum að kenna og stjórnvöld virðast koma af fjöllum í þessu máli. Til utanlandsbrúks er annað upp á teningnum eins og þessi skrif stjórnvalda til Dominique Strauss-Kahn framkvæmdastjóra AGS sýna. 7. apríl, 2010 skrifa Jóhanna og […]
Margar af helstu persónum í Rannsóknarskýrslu Aþingis virðast hafa fært sig úr bankafúski yfir í fjölmiðlafúsk. Á sama hátt of yfirráð yfir bönkum sameinaði þetta fólk áður fyrr, sameinar fjölmiðlarekstur þetta lið í dag, ef fjölmiðlarekstur er rétta orðið. Ætli matreiðsla þeirra á fréttum og skoðunum verði jafn afdrifarík og skuldasúpa þeirra?