Við körfuboltamenn erum í fararbroddi á mörgum sviðum. Tölfræði og heimasíður voru nánast óþekkt fyrirbrigði fyrir nokkrum árum annarsstaðar en hjá körfuboltafólki.
Og við förum enn fyrir. Í kvöld eru tveir leikir í beinni útsendingu á netinu. Karfan.is verður með toppleikinn í 1 deild milli Breiðabliks og FSU. Og KR sýnir leik KR og ÍR. Auk þess held ég að KFÍ sýni alla leik fyrir vestan beint á netinu. Allt kl 19 15.
Er þetta ekki ropandi snilld?
Röggi.
KFÍ sýndi að mig minnir alla heimaleiki sína á síðasta kemmpnistímabili í beinni á netinu. Held líka að þeir hafi verið byrjaðir að „fikta“ eitthvað við þetta tímabilið þar á undan. Heyrði líka að þeir hefðu aðstoðað KR-inga við að koma sínum sendingum af stað nú í haust.
Þett á auðvitað að vera „keppnistímabil“ hjá mér en ekki þetta orðskrípi sem myndaðist í staðinn…:-)