Fimmtudagur 29.10.2009 - 18:36 - 3 ummæli

VG í stríði við verkalýðinn.

Árni Þór einn af æðstuprestum VG ræðst á Gylfa Arnbjörnsson formann ASÍ vegna þess að hann er ekki nógu hlýðinn. Vinstri menn telja sig nefnilega þinglýsta eigendur verkalyðsbaráttunnar og reiðilestur Árna Þórs er ekkert minna en hótun af hans hálfu um að Gylfi verði ekki langlífur í starfi með þessu áframhaldi.

VG er að vaxa sjálfstraust og um leið kemur eðlið í ljós. Stórfyrirtæki, fjármagn og auðvald eru óvinurinn í munni Árna Þórs. Eða í stuttu máli, atvinnulífið enda sjáum við hvaða afstöðu þessi flokkur hefur til þess geira þjóðfélagsins. Þetta eru raunar ekki ný tíðindi en margir höfðu gleymt þessu þegar þeir merktu við vinstri.

Nú verður spennandi að sjá hvort framkvæmdavaldinu tekst að beygja verkalýðinn undir sig og til hlýðni. Vinstri stjórnin hefur sagt verkalýðsbaráttunni stríð á hendur og því stríði mun hún tapa.

Gylfi Arnbjörnsson sækir nefnilega umboð sitt ekki til Árna Þórs eða annarra stjórnmálamanna. Og hver kaus Árna Þór til að skipta sér af málefnum verkafólks? Hér fer Árni fram af óvenju miklum hroka og frekju og greinilegt er að óþol stjórnarinnar gagnvart aðilum vinnumarkaðarins er á þrotum.

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Moskvu komminn Árni Þór er óánægður vegna þess að verkalýðshreifinnginn er ekki samstíga VG og Samfylkinguni og getur ekki skilið það að árásir ríkisstjórnarinnar á launþega landsins séu varinn á samatíma verja þeir hagsmuni útrásarvíkingana að þeir verði fyrir sem minnstu skaða fjárhagslega af gjörðum sínum en láta heimili launþegans og skuldir lönd og leið.

  • Anonymous

    Síðan hélt ballið áfram í Kastljósinu, þegar Mörður Árnason frá Samfylkingunni réðist á Gylfa Arnbjörnsson af sömu ástæðum.Ætlar ASÍ að láta vinstri stjórnina kúga sig á þennan hátt?http://blog.eyjan.is/gudbjorn/

  • Anonymous

    Æ, þið eruð svo miklir verkamenn.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og einum? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur