Ég las viðtal við Stefán Ólafsson prófessor og stjórnmálamann í DV um helgina. Þar segist Stefán hafa hafið bloggskrif til að bjarga okkur frá umræðu sem vondir hægri menn gera út og þjóðin spili með. Að mati fræðimannsins eru slíkir menn þannig að þeir kæra sig ekki um staðreyndir. Stefán hins vegar er sérlegur sendiboði sannleikans […]
Stefán Ólafsson stjórnamála og fræðimaður er handhafi sannleikans. Slíkir menn hafa í gegnum söguna reynst misjafnlega…. Í viðtali í DV talar hann eins og frelsandi messías sem ákvað loks að opna munninn til að frelsa okkur frá vondum hægri mönnum sem tala of mikið og hafa skoðanir sem Stefán tekur ekki mark á. Auk þessa […]
Ritstjórn eyjunnar ákveður að gera kjafthátt Björns Vals Gíslasonar að frétt á síðunni einn ganginn enn í dag. Hvað fær þá sem stýra fjölmiðlum til að halda að þvi stærra sem menn taka upp í sig því merkilegra? Áratuga löng minnimáttarkennd andstæðinga Davíðs Oddssonar er ekki lengur nokkur frétt. Reyndar er það nú þannig að þessi […]
Gaman að sjá að málsmetandi menn hafa skyndilega mikinn áhuga á því hvernig afkomutölur fjölmiðla eru. Einnig nýtist áunnin óbeit höfundar á útgerðarmönnum honum vel við skrifin og veitir innblástur án þess þó að það geri umræðunni nógu mikið gagn. Í nýlegri sögu okkar hafa endutekið komið upp dæmi um gríðarlegar afskriftir og kennitöluæfingar með […]
Grímur Atlason er skemmtilegur gaur og auk þess mikill Valsmaður og það er alltaf plús. Hann er skeleggur talsmaður skoðanna sinna og það getur líka verið plús. Í dag fylltist Grímur heilagri vandlætingu vegna moggans og Davíðs Oddssonar. Það eru engin tíðindi svona almennt talað enda Grímur úr kreðsunni sem hefur aldrei jafnað sig á […]
Eitt af því sem var fyrirséð þegar við fengum þessu hreinu vinstri stjórn til valda var að skilin á milli hægri og vinstri hlutu að skerpast. Nú dugur ekki lengur að nota gamla frasann um að sami rassinn sé undir öllum í pólitík. Þetta þóttu mörgum slæm tíðindi en ekki mér. Það er munur á milli […]
Ég sá litla frétt áðan á stöð 2. Fréttin er um það hversu mikið mætti spara í pappírskostnaði með því að fá þingmönnum spjaldtölvur. Þetta hafa þjóðþing víða um lönd gert með góðum árangri og ódýrari. Fréttastofan bar þetta undir skrifstofustjóra alþingis sem sá á þessu meinbugi.Og embættismaðurinn fullyrti að sumir þingmenn myndu aldrei fást til […]
Það er með mig eins og marga að þessa dagana verður manni mjög hugsað um fjölmiðla. Fagmennsku þeirra og eftir atvikum hlutleysi. Eða öllu heldur skort á fagmennsku og hlutleysi.Hér áður voru blöðin flokksblöð og því ekki gerð hlutleysiskrafa til þeirra. Í dag þykjast blöðin vera hlutlaus nema ef vera skyldi Mogginn sem kannast við […]
Auðvitað sýnist hverjum sitt þegar rætt er um úrslit kosninganna í gær. Við reynum að lesa út úr stöðunni og niðurstöðurnar eftir smekk. Þar er ég varla betri en aðrir…..Sumt er áhugaverðara en annað eins og gengur en eitt er eins víst og að morgundagurinn rennur upp að embættið er orðið stórpólitískt og verður það […]
Í dag kusum við okkur forseta.Það sem tryggði Ólafi embættið nú öðru fremur var, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, framganga hans í Icesave með 98% þjóðarinnar að baki og sú aðferð hans að nota málskotsréttinn og þjóðaratkvæðagreiðslur.Frábært að fylgjast með krampakenndum viðbrögðum andstæðinga Ólafs sem flestir ef ekki allir hafa á „réttum“ […]