Mikið virðist það vera gefandi að þola Ólaf Ragnar alls ekki. Hann hefur áratugum saman haft þau áhrif á andstæðinga sína að fara yfirgengilega í þeirra fínustu taugar.Maðurinn er enda allt að því óþolandi á löngum köflum. Enginn frýr honum þó vits og góðu dagarrnir hans eru helvíti góðir. Ólafur lýtur engum lögmálum öðrum en þeim […]
Hreyfingin fékk sér kaffisopa í ráðherrabústað. Það þykir sumum merkilegt og sjá í þessum molasopa allskonar plott. Slíku neita þingmenn Hreyfingarinnar eindregið og upplýsa að þau hafi þegið sopann til þess að segja vanmáttugri ríkisstjórn að þau muni greiða atkvæði með þeim málum sem þeim lýst vel á. Þarf að boða til hátíðarfunda til að […]
Í persónu Ólafs Ragnars Grímssonar kristallast íslensk drullumallspólitík. Hann hefur á sínum 16 árum á Bessastöðum sveiflast til og frá á hinum pólitíska mælikvarða með stefnumarkandi ákvörðunum út og suður án nokkurs umboðs. Hann hefur þjónað hagsmunum stjórnmálamanna á báðar áttir á sinum tíma í embætti. Og það er skemmtilegur taktur í því þegar hin prínsippslausu […]
Félagi Ögmundur hefur það umfram svo marga aðra stjórnmálamenn að segja oftar en ekki það sem hann meinar eða hugsar. Þetta er auðvitað til merkilegrar eftirbreytni en athyglisvert að karlinn nýtur þessara eðliskosta sinna takmarkað til vinsælda eða virðingar.Það stafar ef mér skjöplast ekki af því að fólk metur þessa hreinskilni hans minna en þær […]
Hvar værum við stödd ef ekki væri fyrir ábyrga stjórnmálamenn sem gæta þess að við förum okkur ekki að voða? Ég er að tala um þá tegund slíkra sem telja fyrir einhvern stórmerkilegan misskilning að þeir sjálfir séu best til þess fallnir að hafa vit fyrir okkur í stóru og smáu. Forsjárhyggjustjórnmálamanninn… Þessi áhugaverða tegund […]
Þá vitum við það, Geir Haarde var óduglegur að halda ráðherrafundi. Mig minnir reyndar að Samfylking hafi á þessum tíma átt í umfangsmiklu basli með að fá ráðherra sína til að halda trúnað um nokkurn skapaðan hlut og því kannski ekki fundafært um mál sem ekki mátti komast í umræðuna þá.Ég veit það eins og […]
Jón Bjarnason er aftan úr grárri forneskju pólitískt séð. Maður sem sér ekki framrúðuna heldur miklu frekar pínkulítinn baksýnisspegilinn. Honum finnst allt sem var vera best af einhverjum ástæðum. Og honum finnst þeir sem kjörnir eru á þing vera þeir sem öllu eiga að ráða. Svona líta margir á Jón Bjarnason og fussa. Kommaframsóknarafturhald segja […]
Sjálfstæðismenn fundu upp málþófið. Sú saga gengur fjöllum hærra núna og sumir þingmenn fyllast sorg yfir þessari aðferðafræði. Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af málþófi en minnir að allir flokkar hafi notað það eftir smekk sitt á hvað alla tíð.Og alltaf kvartar meirihlutinn. Málþóf eru leiðindi sama hver beitir þeim
Hvað ætli ég hafi verið gamall þegar ég heyrði orðið feministi fyrst? Kannski er ekki svo langt síðan þannig séð. Ég man heldur ekki nákvæmlega hvað ég var gamall þegar ég lærði þau eilífu sannindi að auðvitað á að vera fullt jafnrétti kynjanna. Ég skyldi það mætavel þá og alla tíð síðan en ég skil […]