Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Fimmtudagur 27.12 2007 - 22:32

Bubbi í sparifötunum.

Missti meira og minna af kastljósinu í kvöld. Lítll skaði þannig séð. Sá þó Bubba kóng sparikkæddann syngja með stórsveit. Framandlegur þannig til fara. Hann er ekki spari. Var það einu sinni hjá mér en það hafði ekkert með föt að gera. Nú er hann sterkríkur jeppakall sem talar út í eitt um stangveiðar. Allt […]

Fimmtudagur 27.12 2007 - 09:39

Virðing og öðruvísi virðing.

Hef verið að velta því fyrir nú í dágóðann tíma af hverju góðu gæjarnir virðast ekki duga. Mjúki maðurinn er bara ekki að gera sig. Harðhausarnir þykja betri sama hvað hver segir. Um þetta höfum við fjölmörg dæmi. Ef ég legg saman kosti og galla Davíðs Oddssonar og svo Geirs Haarde þá finnst mér það […]

Föstudagur 21.12 2007 - 12:49

Pirraður Páll.

Hann er heldur betur sperrtur hann Páll Magnússon útvarpsstjóri. Hrokafullur og stóryrtur ef menn hafa skoðanir á því hvernig rúv er rekið. Er fyrir löngu búinn að gleyma öllum yfirlýsingunum sínum frá því að hann vann hjá einkaframtakinu. Þá var það hann sem vældi. Nú eru aðrir í því en prinsippin eru samt þau sömu. […]

Föstudagur 21.12 2007 - 10:28

Afleikir Aðalsteins.

Fréttablaðið heldur áfram að mjólka Aðalstein þjálfara stjörnunnar. Hann gefur greinilega ákveðið að reka sitt mál í fjölmiðlum áfram í stað þess að láta sinn málstað vinna málið þar sem það verður flutt. Afleit taktík. Hann siglir fullum seglum að því að láta víkja sér úr starfi hjá núverandi vinnuveitanda sínum. það ætti honum að […]

Fimmtudagur 20.12 2007 - 22:15

Ráðning Þorsteins.

Þá er búið að koma Þorsteini Davíðssyni fyrir i kerfinu. Og vandlætingarkórinn byrjar strax og kyrja spillingarkvæðin. Fyrst þegar ég heyrði þetta hugsaði ég um það hversu óánægður ég væri með það að minn flokkur væri að gefa höggstað á sér með svona löguðu. Ég segi minn flokkur því ég er blár og oftast harla […]

Fimmtudagur 20.12 2007 - 17:03

„ég dæmdi ekki víti“

Ég hef áður skrifað um málefni KSÍ í nútíð og þátíð. Þar hefur verið af nægu að taka. Allt frá því þegar fyrrverandi formaður lét það viðgangast að einn besti sonur íslenskrar knattspyrnu, Guðni Bergs, var gerður útlægur vegna skapgerðabresta þáverandi þjálfara til þeirra óleystu vandamála sem tengjast fyrirliða liðsins í dag. Þá eins og […]

Mánudagur 17.12 2007 - 23:43

Konur í Afghanistan.

Ég er að ég held bara ósköp venjulegur fýr. Hvorki betri eða verri en flestir. Hef einfaldar þarfir yfirleitt. Þoli ekki óréttlæti heimsins hvernig sem það birtist. Get aftur á móti rifist um hvernig best er að vinna á vandanum. Sat fyrir framan sjónvarpið í kvöld og sá fyrir tilviljun þátt um konur í Afghanistan. […]

Mánudagur 17.12 2007 - 16:04

Kalli Bjarni þegir.

Hvernig ætli standi á því að Kalli Bjarni þorir ekki að segja frá þeim sem fengu hann til að að burðast með dóp til landsins? Jú örugglega að hluta til óttinn við hefnd en kannski líka vegna þess að alls ekki er hægt að átta sig á því hver hagur mannsins væri af því að […]

Sunnudagur 16.12 2007 - 21:32

Ekkert verðsamráð.

Glimrandi fín frétt á rúv í kvöld um verðmun á þjónustu hársnyrtistofa. Hellings verðmunur sem er gott og eðlilegt. Fréttamaðurinn taldi fréttina reyndar vera þessi mikli verðmunur. Stundum allt að helmingsmunur. Þetta eru góð tíðindi af greininni hefði ég haldið. Eðlileg samkeppni og mikill verðmunur. Við erum orðin svo vön verðsamráði og einnarkrónu verðmuninum sem […]

Fimmtudagur 13.12 2007 - 14:54

Svekktur þjálfari.

Það er ekki ofsögum sagt að hann sé sársvekktur þjálfari kvennaliðs stjörnunar í handbolta. Aganefnd HSÍ tók myndarlega á ummælum hans síendurteknum í fjölmiðlum. Gæti skrifað mikinn langhund um það hvernig þeir sem tengjast íþróttum geta misskilið margt sem kemur að dómgæslu. Þjálfarinn er einn af þeim þó að ég geti alveg skilið að ekki […]

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur