Fimmtudagur 10.10.2013 - 14:46 - FB ummæli ()

Getur mislingafaraldur komið upp í Vestmannaeyjum?

Í dag berast fréttir af því að aðeins um 75% foreldra í Vestmannaeyjum hafi látið bólusetja börnin sín fyrir Mislingum, Hettusótt og Rauðum hundum (MMR) við 4 ára aldur og sem er alls ófullnægjandi til að hjarðónæmi gegn þessum veirusóttum haldist í samfélaginu. Af þessu tilefni endurrita ég nú grein um efnið sem ég skrifaði sl. vor.

Byrjað var að bólusetja börn við hettusótt, ásamt mislingum og rauðum hundum (MMR) hér á landi um 1989 (áður hafði verið bólusett gegn mislingum einum og sér frá 1976). Strax fækkaði tilfellum ört og þessara sjúkdóma hefur ekki orðið mikið vart sl. ár. Hettusótt getur verið alvarlegur smitsjúkdómur, en mislingar eru þó miklu verri vegna hugsanlegra afleiðinga svo sem alvarlegrar heilabólgu. Rauðir hundar geta eins verið alvarlegir og sem valdið geta fósturskaða hjá smitaðri móður. Því er til mikils að vinna hér á landi að halda þessum smitsjúkdómum barna og reyndar stundum fullorðinna áfram niðri með góðri þátttöku í ungbarnabólusetningunum sérstklega. En það eru blikur á lofti.

Almennt er velferð barna talin góð á Íslandi samanborði við önnur rík lönd og skipar reyndar 3 sætið af 21 löndum, næst á eftir Hollandi og Noregi samkvæmt úttekt UNICEF, Barnahjálp Sameiniðuþjóðanna og sem kom út snemma í vor. Ísland skipar reyndar annað sætið hvað varðar almennt heilsufar, næst á eftir Svíþjóð, en tannheilsan var reyndar ekki skoðuð sérstaklega og vitað er að við stöndum illa að vígi. Að einu leiti skar Ísland sig þó úr varðandi almennt heilsufar og sem var þátttakan í ungbarnabólusetningunum þar sem við skipum aðeins 12 sætið. Einn helsti mælikvarðinn á heilsugæslu barna eins og segir í skýrslunni. Þetta skýtur skökku við því óvíða hefði maður haldið fyrirfram að ungbarnaheilsuverndin væri öflugri en hér á landi, og er sá hornsteinn heilsugæslunnar sem best er haldið utan um í heilbrigðisniðurskurðinum.

Á síðustu árum hafa sum samtök og áhugafólk sem er á móti bólusetningum slegið fram kenningum um hugsanlegar aukaverkanir af MMR bólusetningunni sem stendur öllum 18 mánaða börnum víða ókeypis til boða. Umræða sem lækkaði flugið þegar rannsóknir reyndust falsaðar en höfðu náð birtu í virtum læknatímaritum fyrir síðustu aldarmót. Kenningar sem þar komu fram þannig  afsannaðar og höfundar dæmdir fyrir svikin. Engin tengsl eru enda talin vera á milli einhverfu og mislingabólusetningar. Áróður þessara einstaklinga og samtaka þeirra náði samt að eitra út frá sér og valda ótta og óvissu margra foreldra, m.a. hér á landi. Afleiðingarnar á meginlandi Evrópu og víðar er aukinn fjöldi mislingatilfella sem heilbrigðisyfirvöld margra landa hafa nú miklar áhyggjur af. Afleiðingarnar hér á landi, eru enn sem betur fer, bara aðeins lélegri þátttaka í MMR bólusetningum en efni standa til, eða um 95% í stað nærri 100% þátttöku. Fullt hjarðónæmi skapast enda ekki nema flest börn taki þátt.

Sl. haust las ég athyglisverða bandaríska blogggrein eftir Sushrut Jangi og sem fjallaði um vísindagrein í vísindatímaritinu NEJM um mikilvægi almennrar þátttöku í MMR bólusetningum sem stjórnvöld þar bjóða líka ókeypis. Ekki síst til að mynda gott hjarðónæmi þegnanna þar gegn alvarlegustu smitsjúkdómunum sem alltaf geta blossað upp. Nánar tiltekið var fjallað um þegar smáfaraldur af hettusótt braust út í Brooklyn hverfinu í New York fyrir fjórum árum í kjölfar smits frá óbólusettum, en nýsmituðum einstaklingi sem var nýkominn frá Bretlandi. Með öflugum vírus og faraldri í byrjun, en sem fjaraði sem betur fer út í næsta nágrenni vegna öflugra varna samfélagsins, hjaðónæmisins, og sem bar að þakka góðri þátttöku almennra borgara í bólusetningum gegn hettusótt árin á undan.

Það sem alltaf gerist þegar þeir bólusettu veita jafnvel vörn fyrir þá fáu sem eru ekki bólusettir einhverja hluta vegna. Nákvæmlega það sem og gildir um allar bólusetningar og varnirnar sem þær veita á ögurstundu, þegar faraldrar brjótast út og hjarðónæmið skiptir sköpum. Og þeir óbólusettu verða að treysta á í dag.

http://www.visir.is/fjolmorg-born-i-eyjum-ekki-bolusett/article/2013710099940

http://www.unicef.is/velferdbarna

http://www.guardian.co.uk/society/2013/apr/16/measles-outbreak-5000-children-risk

http://www.guardian.co.uk/society/2013/apr/15/homeopathy-measles-mp

http://www.guardian.co.uk/uk/2013/apr/18/swansea-measles-cases-exceed-800

http://www.guardian.co.uk/society/2013/apr/19/measles-outbreak-man-died-swansea

http://www.bbc.co.uk/news/health-22295629

Það sem við þurfum að vita um mislinga: http://www.guardian.co.uk/society/2013/apr/19/measles-symptoms-complications

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn