Föstudagur 04.12.2015 - 20:06 - FB ummæli ()

Alþingi í manninn, en samt sjálft með boltann

sitelogoÞað er allt að verða vitlaust út af „litlum“ 400-800 milljónum sem bráðvantar upp á rekstur LSH. Lagðar eru til 30 milljónir til að greina vandann, meðal annars í vanáætlun fjárlaganna sjálfra vegna kjarasamninga á árinu. Svo stefna megi að aukinni hagræðingu eins og það heitir og þegar raunverulega vantar tæpa 3 milljarða í reksturinn! Allt eftir að forstjóri Landspítalans var tekinn á beinið af fjárlaganefnd Alþingis og sem vildi bara benda á vandann. Launum er þegar haldið niðri, mannekla víða og viðhald lítið. Ný tæki jafnvel vantar nema sem gefin eru af góðgerðafélögum og Kára. Sjúkrarúmin af rekstrarafgangi og hagnaði bankanna. Spítali og heilbrigðiskerfi sem er að hruni komið og Alþingi lítur á sem bagga á þjóðfélaginu.

Sameinað nýtt stórt og hagkvæmt þjóðarsjúkrahús á sem bestum stað getur skilað allt að 6 milljarða hagnaði af rekstrakostnaði á ári samanborið við aðeins 2 milljarða sem stefnt er að á Hringbrautarlóð með bútasaum og miklum aukakostnaði í viðhaldi og endurnýjun. Hagnaður sem gerir þá mikið meira en t.d. að standa undir lánakostnaði og miðað við NÚVERANDI fjárveitingar til spítalans og sem eru auðvitað allt of lágar.

Hvað er Alþingi eiginlega að hugsa? Hvar eru langtímamarkmiðin m.t.t. raunverulega og hagkvæma nútímalega uppbyggingu heilbrigðiskerfisins? Er ekki bara verið að teyma þjóðina á asnaeyrum í áframhaldandi og langvarandi raunniðurskurði á heilbrigðiskerfinu og sem mörgum stjórnmálamönnum finnst þegar vera orðið allt of kostnaðarsamt?

Fréttir á Vísi (auðvitað ekki á RÚV) svo 6.12.2015

lsh

 

http://www.visir.is/sigridur-osatt-vid-vigdisi—ogedfelld-nidurstada-/article/2015151209607

http://www.laeknabladid.is/tolublod/2015/12/nr/5661

http://blog.dv.is/vilhjalmurari/2015/11/07/lifshaettuleg-gagnryni-a-nyja-landspitalann/

Flokkar: Óflokkað · Bloggar · Dægurmál · heilbrigðismál · Lífstíll · Stjórnmál og samfélag

«
»

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn