Í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar sem lá upphaflega til grundvallar staðsetningu Nýja þjóðarsjúkrahússins á Hringbraut, var áréttuð nauðsynleg þörf sjúkraþyrluflugs. Allt var gert af þeirra hálfu að halda í stærsta vinnustað landsins á Hringbrautinni og öllu fögru lofað. Lögð var blessun yfir fyrirhuguðum þyrlupalli á 5 hæð nýja rannsóknahússins. Gert var ráð fyrir stórum þyrlum svipuðum og […]
Enn og aftur liggur fyrir frumvarp stjórnarþingmanna um frjálsa sölu áfengis, í matvöruverslunum og jafnvel heilsu- og blómabúðum, í nafni frjálshyggjunar. Skrifaði pistil um sama efni fyrir 8 árum um umræðan er ekki ný. Netsala áfengis hefur aukist gríðarlega sl. ár og áfengisneysla Íslendinga stóraukist, jafnhliða áfengistengdum sjúkdómum og vímuvanda. Áfengisbölið var þegar mikið í […]
Þetta ættu allir bændur að þekkja best. Þú undirbýrð akurinn fyrir bestu uppskeru sem mögulegt er og tryggir síðan sjálfbærnina og gæðin. Samt selur afurðasölufyrirtæki í þeirra eigu (Esja gæðafæði ehf) ásamt reyndar fleiri fyrirtækjum, kjúkling ólöglega til landsins beint frá Úkraínu samkvæmt frétt Bændablaðsins í vikunni. Þar sem miklar líkur eru á að kjötið […]
Læknisstarfið mitt hefur tekið ýmsum breytingum í áranna rás. Á lokakafla starfsferils er fróðlegt að líta um öxl. Í sjálfu sér hefði ég ekki getað kosið betra lífsstarf og þakklátur fyrir mín tækifæri. Starfsgleðina eining sem nær langt út fyrir venjulegan vinnutíma. En hvernig getur atvinna heltekið mann? Jú, vinna með fólki sem sýnir […]
Neðanrituð er umsögn undirritaðs til stuðnings efnisatriðum í umsögn Atla Árnasonar, sérfræðings í heimilis- og heilsugæslulækningum, https://samradsgatt.island.is/Skrar/$Cases/GetAdviceFile/… á stjórnarfrumvarpi til laga um ný sóttvarnalög. Eins til stuðnings umsagnar Umboðsmanns barna á sama frumvarpi og þar sem kemur í ljós álit hans á vöntun samráðs stjórnvalda fagaðila í sóttvarnaaðgerðum. https://samradsgatt.island.is/Skrar/$Cases/GetAdviceFile/… Lítil virkni Sóttvarnaráðs Íslands (SÍ) sl. […]
Sl. 2 ár sýnir best hverjir bera mestu vinnubyrðarnar í Covid19 heimsfaraldrinum, heilbrigðisstarfsfólkið. Aðilar og starfsemi þeirra sem samt hefur verið reynt að hlífa við ofurálagi með sóttvarna- og neyðaraðgerðum stjórnvalda. Að hlífa heilbrigðiskerfinu við að fara alveg á hliðina og þjóðarsjúkrahúsið rekið því ýmist á hættustigi eða neyðarstigi. Sjaldan hafa enda jafnmargir legið á […]
Um síðust helgi dvaldist ég í Kaupmannahöfn með konunni minni sem sat norræna ráðstefnu um mikilvægi góðra tengsla móður og ungbarns. Ein mikilvægustu tengslin okkar til tilfinninga og félagslegrar hæfni. Mín tengsl þarna voru hins vegar nokkuð óvænt við annan veruleika í Fredriksborgarlistigarðinum sem ég gekk daglega til og sem Friðrík VI danakonungur (1768-1839) lét […]
Helsta kosningamál alþingiskosninga 2021 eru heilbrigðismálin og sem margir telja í miklum ólestri. Allir stjórnmálaflokkarnir eru a.m.k. sammála um að margt þurfi að bæta. Ólík rekstrarform, bættur aðbúnaður aldraða, fjölgun öldrunarstofnana og betri fjármögnunarmöguleiki stofnana ber þar hæst. Það sem miklu síður er rætt um er hvernig bæta megi mannauðinn sjálfan, stjórnun og að kerfin vinni betur […]
Einn mikilvægasti kjarni í starfsemi Bráðamóttöku Landspítalans (BMT LSH) og sem áður hét Slysadeild Borgarspítala og var undir forræði bæklunarlækna, er almenn móttaka slasaðra og bráðveikra. Slysavarðstofa hafði áður verið rekin á Barónsstíg um árabil og þar áður á Hvíta bandinu. Sl. 4 áratugi hefur „bráðamóttakan“ og hvaða nafni sem hún nú kallast á […]
Sennilega slasast vel yfir 1000 Íslendingar misalvarlega á ári í rafskútuslysum og aukningin verið ískyggilega hröð sl. 2 ár. Líkja má slysatíðninni sem alvarlegum lýðheilsufaraldri. Höfuð- og hálsáverkar, skurðsár og brotnar tennur eru algengir áverkar. Beinbrot á útlimum sömuleiðis. Sumir áverkkana eru lífshættulegir og séð hefur maður brotna tilgengna banakringlu eftir slík slys. Ekki er […]