Þriðjudagur 19.02.2008 - 16:58 - 2 ummæli

Tvöþúsund og eitthvað.

2, eitthvað milljarðar. Við erum að verða ónæm fyrir orðinu, milljarður. Þetta þótti stór tala fyrir nokkrum árum áður en stórstjörnur viðskiptalífsins riðu hér húsum. Nú er þetta orð á allra vörum bara. Hversdagsleg tala.

Jón Ásgeir er formaður stjórnar fl group og hann skilur ekki bofs í þessari tölu. Lætur eins og hún komi honum í opna skjöldu og hann hafi bara ekki áttað sig á hvað Hannes væri að gera þegar hann þurfti þessa upphæð í annan kostnað óútskýrðann. Hver trúir svona þvaðri? Hann er bara hvítþveginn. Eins og oft áður.

Ég var að fatta að þetta eru tvö þúsund og eitthvað milljónir. 2 000 og eitthvað. Pæliði í því…

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Anonymous

    Var ekki sérfræðiaðstoð og lögfræðikostn. eittþúsundogþrjúhundruðmilljónir til viðbótar.Ef það er rétt, þá hafa tapast um það bil tíumilljónir á degi hverjum ef þeir hafa unnið alla laugardaga á árinu. Sem ég reikna með að hafi verið gert.Menn tapa ekki svona peningum í dagvinnu. SHIT STINKS!!!!!!!!!

  • Anonymous

    ætli við verðum ekki bara að fara að tala um þessar upphæðir í aurum…??? :)einu sinni var 10.000 krónur stjarnfræðileg upphæð… heyrist varla núna, nema það sé farið með börnin „út að borða“ í staldrið…

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sex? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur